MIKILVÆGT
Þegar aðfangi er bætt á sýningu verður til Skrásett-færsla fyrir hvert aðfang. Þar skráir þú sértækar upplýsingar um aðfangið í samhengi sýningarinnar (t.d. staða, meðhöndlun og framsetning).
Mundu: Aðföng geyma grunnskráningu grips. Sýning er verkefnið. Skrásett geymir verkefnaupplýsingar gripsins í sýningunni.
Dæmi um vinnuferli
Sýning með láni
- Stofna Sýningu.
- Stofna Samning (innlán/útlán) og tengja við sýninguna.
- Bæta aðföngum á sýninguna.
- Opna Skrásett fyrir hvert aðfang og skrá: stöðu, rými, meðhöndlun, tryggingar og ástand.
Innanhússýning (án láns)
- Stofna Sýningu.
- Bæta aðföngum á sýninguna.
- Opna Skrásett og fylla út upplýsingar um hvert aðfang (t.d. staða, rými, við sýningu).
Athugið: Sama aðfang getur verið í fleiri en einni sýningu eða í láni á sama tíma. Þess vegna er Skrásett alltaf uppfært fyrir hvert samhengi.
Skrá eða breyta sýningu
- Opnaðu Sýningar í valmynd (undir Umsýsla).
- Smelltu á Búa til nýja eða leitaðu að sýningu til að breyta.
- Fylltu út lykilreiti:
- Heiti sýningar
- Tegund sýningar (t.d. sérsýning, grunnsýning)
- Upphafsdagur og lokadagur eða Tímabil (frá–til)
- Sýningarstaður (sótt úr Stofnanir – samstarfsaðilar )
- Þátttakendur (t.d. sýningarstjóri; sótt úr samstarfsaðilum)
- Valfrjálst: Skráðu texta og kynningu undir Ítarupplýsingar.
- Valfrjálst: Stilltu stöðu sýningar (t.d. „Í undirbúningi“ / „Opin“ / „Lokuð“) ef slíkur reitur er notaður hjá ykkur.
- Tengdu heimildir / skjöl ef við á (t.d. sýningarskrár, bækur).
- Vistaðu.
Bæta aðföngum á sýningu
Aðföng eru tengd við sýningu með draga & sleppa inn í gluggann Aðföng. Þú getur sótt aðföng með nokkrum leiðum:
- Hægri leitarflipi: Leitaðu eftir nafni, safnnúmeri eða öðrum lykilupplýsingum og dragðu aðfang inn á sýninguna.
- Vistuð leit: Ef þú ert búin(n) að vista leit í Aðföngum geturðu keyrt hana og dregið öll aðföngin yfir.
- Úr vinnumöppu: Finndu vinnumöppuna í Nánari leit og dragðu aðföngin þaðan yfir á sýninguna.
Ábending: Ef sýning er stór er oft þægilegt að nota Vistuð leit til að tengja mörg aðföng í einu lagi.
Mundu einnig að vista sýninguna eftir að þú bætir við aðföngum.
Hvar finn ég Skrásett-færslurnar?
Þegar aðföng hafa verið tengd við sýningu geturðu opnað Skrásett fyrir tiltekið aðfang úr tengingum við aðfangið (eða með flýtivísun/yfirliti efst í hægra horni). Í Skrásett uppfærir þú stöðu, meðhöndlun og framsetningu fyrir sýninguna.
Fjarlægja aðfang af sýningu (ef rangt var tengt)
- Opnaðu sýninguna.
- Finndu aðfangið í glugganum Aðföng.
- Fjarlægðu tenginguna (t.d. með X / „Fjarlægja“ eftir því sem við á).
- Vistaðu.
Athugið: Þú ert að fjarlægja tenginguna við sýninguna – ekki að eyða aðfanginu eða grunnskráningu þess.
Kennslumyndband
Framsetning gagna
Ítarleg sýn
Sýnir allar upplýsingar og tengingar fyrir eina sýningu.
Töflusýn
Listar margar sýningar með lykilatriðum (heiti, staður, tímabil, fjöldi aðfanga).
Dagatal
Sýnir sýningar eftir dagsetningum.
Skjöl og vefbirting
- Hlaðið upp Rafrænum skjölum (t.d. sýningaráætlanir, texta, myndir) – gert hægra megin undir filmutákninu.
- Stilltu sjálfgefna mynd ef sýning á að birtast með myndefni í yfirlitum.
Leit, töflusýn og útflutningur
- Grunnleit fyrir yfirlit; Nánari leit til að afmarka (tegund, sýningarstaður, tímabil).
- Töflusýn: Stilltu dálka og röðun (t.d. heiti, staður, tímabil, fjöldi aðfanga).
- Flytja út: XLS speglar valda dálka og röðun í töflusýn.
- Flytja út skýrslu: Hægt er að flytja út fyrirfram skilgreind form (Word/Excel). Ef óskað er eftir sérsniðnu formi, hafðu samband við RS á sarpurhjalp@landskerfi.is.
Algengar villur
- Sýningarstaður rangt skráður eða finnst ekki: Sýningarstaður tengist Stofnunum (samstarfsaðilum), ekki Nafnaskrá.
- Tímabil vantar: Sýning birtist ekki á réttum degi. Lausn: fylla inn frá–til dagsetningu.
- Aðföng bætt við en ekkert sést: Mundu að vista eftir að draga & sleppa aðföngum á sýninguna.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina