Hér eru almennir reitir sem eru efst í flestum aðfangafærslum. Þeir eru að mestu sömu milli aðfangategunda og hjálpa til við leit, birtingu og samræmi.
Mundu
- Vægi (1, 2, 3…) stýrir oft röðun og því hvað birtist fyrst.
- Sumir reitir birtast á ytri vef – það er tekið skýrt fram í þessari grein.
- Þú getur oft notað Ctrl-smellt (Windows) / ⌘-smellt (Mac) til að opna tengda færslu í nýjum glugga.
Nafnaskrá
Birtist á ytri vef: Já
Hér tengir þú aðila (t.d. höfund, ljósmyndara, gefanda o.s.frv.) við aðfangið og velur hlutverk og/eða tileinkun. Vægi stýrir röðun: aðili með Vægi 1 birtist fyrst (í hópreit og oft á ytri vef).
Athugið
Ef þú vilt ekki birta t.d. "Gefanda" á ytri vef, þá er oft betra að skrá slíkt í Aðfangaskrá – Eigendasaga.

Efnisorð
Birtist á ytri vef: Já (stundum sem fyrirsögn, ef titill er ekki til staðar)
Veldu fyrst tegund og síðan efnisorð. Þegar þú byrjar að skrifa birtast tillögur sem passa við. Þú getur líka smellt á táknið hægra megin til að opna valglugga.
- Smelltu á litla plúsinn neðst til vinstri til að bæta við fleiri efnisorðum.
- Ef titill vantar getur efnisorð orðið titill á ytri vef – stilltu þá það efnisorð sem á að birtast sem Vægi 1.
Samræmi í efnisorðum
Ef þú sérð tvítekin eða mjög lík efnisorð, láttu vita – þá er hægt að sameina þau og bæta leitanleika.

Flokkun
Birtist á ytri vef: Já
Veldu tegund/flokk. Reiturinn Gerð (og valmöguleikar) breytist eftir því hvaða flokkur er valinn. Hægt er að bæta við fleiri gildum eftir þörfum, en það er eingöngu gert af starfsfólki RS.

Safnnúmer
Birtist á ytri vef: Já
Veldu fyrst Númerakerfi til að fá rétta reiti. Hvert safn getur verið með sitt kerfi og (ef stillt) sjálfvirka talningu. Ath.: Sjálfvirk talning er stillt fyrir safnið (ekki hvern notanda).
- Vægi stýrir hvaða safnnúmer birtist fyrst.
- Smelltu á plúsinn til að bæta við fleiri númerum.
- Mælt er með að velja Tegund ef hún á að birtast skýrt með númerinu.

Titill
Birtist á ytri vef: Já (oft sem fyrirsögn)
Veldu tegund titils og skráðu titilinn. Titill er oft það fyrsta sem notandi sér á ytri vef.

Aldur / Tímabil
Birtist á ytri vef: Já (ef Tegund = Aldur)
Hér getur þú valið fyrirfram skilgreind tímabil (söguleg tímabil) eða skráð aldur í reitina Frá og Til. Hægt er að óska eftir skilgreindum tímabilum.
- nákvæma dagsetningu (t.d. 25.08.1876)
- mánuð og ár (t.d. 08.1876)
- bara ár (t.d. 1876)


Efni / Tækni
Birtist á ytri vef: Já
Veldu tegund til að stýra hvaða orðasafn birtist. Þú getur skráð fleiri en eitt efni/tækni með plúsnum.



eMuseumPlus
Birtist á ytri vef: Já (slóð á færslu)
Hér birtist slóð á aðfangið á ytri vefnum. Slóðin verður til sjálfkrafa þegar færslan er vistuð. Þú getur afritað slóðina til að senda áfram eða opna aðfangið beint á vefnum.

Rafræn skjöl — hlaða upp
Birtist á ytri vef: Já
- Opnaðu aðfangið og veldu hægra megin Rafræn skjöl (eða smelltu á + við myndasvæðið).
- Smelltu á + eða dragðu & slepptu skrám (myndir, PDF o.fl.).
- (Valfrjálst) Stilltu aðalmynd: hægrismelltu → Setja sem sjálfgefna mynd.
- Uppfæra/eyða: hægrismelltu á skrá → Uppfæra
- Á skrá ekki að birtast á ytri vef? Tvísmelltu á myndina sem flytur þig í eininguna Rafræn skjöl. Þar stillir þú á Internet = Ekki birta á ytri vef. Hægt er að velja birtingu hverrar myndar. Ef ekki er valið neitt þá birtist myndin alltaf á vefnum.

Flipi - Grunnupplýsingar
Ath.: Sumar aðfangategundir hafa ekki sömu grunnupplýsingar.
Stærðir
Birtist á ytri vef: Já
Veldu mælieiningu og skráðu stærðir (þyngd, ummál o.fl.). Eftir breytingar er gott að smella á "Uppfæra forskoðun". Ábending: sláttu inn * til að sjá allar mælieiningar í boði.

Staðaskrá
Birtist á ytri vef: Já (yfirleitt fyrsta innleggið)
Veldu stað úr Staðaskrá Sarps. Ef staður finnst ekki þarf að skrá hann í staðaskrá fyrst. Þú getur Ctrl-smellt / ⌘-smellt til að opna staðinn án þess að fara úr skráningu. Til að fjarlægja valinn stað, smelltu á X.

Lýsing
Birtist á ytri vef: Já
Skráðu lýsingu á aðfanginu. Fyrir langan texta getur þú notað stækkunarglerið í reitnum.

Aðrar upplýsingar
Birtist á ytri vef: Að hluta (Heimildir og Sýningartexti)
Smelltu á plúsinn fyrir framan reitinn og veldu tegund upplýsinga. Dæmi:
- Höfundur tengist Samstarfsaðilum – ef nafnið finnst ekki þarf að skrá aðilann þar.
- Heimildir og Sýningartexti birtast á ytri vef (aðrar tegundir ekki endilega).

Hnit
Birtist á ytri vef: Já (kort, ef hnit eru til eða staður er tengdur)
Veldu hnitakerfi (yfirleitt Ísnet 93) og skráðu hnit með punkti (.) (ekki kommu). Ef aðfang hefur ekki hnit getur kerfið birt staðsetningu á korti út frá Staðaskrá (ef staður er tengdur).

Birta á vef
Birtist á ytri vef: Stýrir birtingu (Já/Nei)
Hér velur þú hvort færslan eigi að birtast á ytri vef eða ekki.
- Vægi skiptir máli (Nafnaskrá, Efnisorð, Safnnúmer) – settu það sem á að birtast fyrst í Vægi 1.
- Rafræn skjöl: stilltu aðalmynd og athugaðu Internet/Birta á sjálfri myndinni ef skrá á ekki að sjást á ytri vef.
- Hnit: veldu hnitakerfi og notaðu punkt (ekki kommu).
- Efnisorð: Titill vantar og ekkert vægi stillt → efnisorð verður óvænt titill á ytri vef.
- Rafræn skjöl: Skrá birtist óvart → Internet/Birta ekki rétt stillt.
- Hnit/kort: Kort birtist ekki → vantar hnitakerfi eða notuð er komma (,) í stað punkts (.).
- Staðaskrá: Reynt að velja stað sem er ekki til → þarf að skrá staðinn fyrst.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina