Flipi: Aðfangaskrá og tilvísanir

Breytt Mon, 2 Feb kl 1:00 PM

Þessi grein fjallar um tvo flipa: Aðfangaskrá og Tilvísanir

Flipi: Aðfangaskrá

Koma á safn

Í reitnum koma á safn eru færðar inn upplýsingar um t.d. komudag, kaupdag, afhendanda, finnanda og seljanda.

Koma á safn

Merking gefanda

Birtist á ytri vef:

Þessi reitur er aðalega notaður af Listasöfnum og birtist á ytri vef.

Fjármál

Birtist á ytri vef: Nei (trúnaðarupplýsingar)

Hér er skráð inn t.d. matsverð, kaupverð og tryggingaupphæð. Þessi reitur er læstur og sést ekki á milli safna.

Í listanum Tegund er hægt að bæta við fleiri efnisorðum.

Höfundarréttur

Birtist á ytri vef:

Þessar upplýsingar eru mikilvægar fyrir ytri vefinn. Ef fyllt er inn tegund = Höfundaréttur og nafn valið úr nafnaskrá þá birtist nafnið undir viðkomandi ljósmynd á ytri vef. Ef ekkert er valið hér þá birtist heiti á safninu sem höfundarréttur.

Höfundarréttur

Eigendasaga

Birtist á ytri vef: Nei (trúnaðarupplýsingar)

Hægt er að skrá fyrri eiganda, núverandi eiganda og gefanda. Ef gefandi á að birtast á ytri vef skal skrá hann í Nafnaskrá. Vilji gefandi ekki birtast á ytri vef má skrá hann hér í eigendasögu.

Munur á Nafnaskrá og Eigendasögu

  • Nafnaskrá → Birtist á ytri vef
  • Eigendasaga → Birtist EKKI á ytri vef 

Eigendasaga

Flipi: Tilvísanir

Undir flipanum tilvísanir eru þær tilvísanir sem eru tengdar viðkomandi aðfangi.

Skrásett / Sýningar

Hér er hægt að sjá hvort viðkomandi aðfang er skráð á sýningu. Ef þú smellir á sýninguna getur þú notað hnappinn "Til baka" til að fara beint aftur í aðfangið.

Skrásett / Samningar

Hér er hægt að sjá hvaða samningar tilheyra viðkomandi aðfangi. Athuga að ekki hafa allir heimild til að sjá samninga.

Athugið: Aðgangur að samningunum er háður notendaheimildum.

Heimildaskrá

Hér getur þú skráð heimild á aðfang. Athuga ef þú finnur ekki heimildina þarf fyrst að fara í eininguna Heimildaskrá og skrá hana þar. Sjá nánar um að skrá í heimildaskrá hér.

Heimildaskrá

Rannsóknir / Greiningar

Hér sérð þú hvort að aðfangið hafi verið tengt fornleifaskráningu eða rannsókn. Einnig er hægt að tengja aðfang við rannsókn. Ýttu á * til að sjá allar rannsóknir. Ef leita á eftir ákveðni rannsókn er best að skrifa inn númerið á henni.

Rannsóknir

Ábendingar í stuttu máli
  • Gefandi á ytri vef? → Skrá í Nafnaskrá
  • Gefandi EKKI á ytri vef? → Skrá í Eigendasögu
  • Höfundarréttur: Ef ekkert valið → birtist safnheiti sem höfundarréttur
  • Heimild vantar? → Þarf að skrá hana fyrst í Heimildaskrá
  • Fjármál: Læstur reitur, sést ekki á milli safna

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina