Almennir reitir og grunnupplýsingar

Breytt Tue, 28 Apr kl 11:13 AM

Hér er yfirlit yfir helstu reiti í aðfangafærslum. Fyrst eru almennir reitir efst á spjaldinu og síðan flipinn Grunnupplýsingar, sem er fremsti flipinn í aðfangaskrá.

Mundu

  • Vægi stýrir oft röðun og því hvað birtist fyrst.
  • Sumir reitir birtast á ytri vef. Það er tekið fram við hvern kafla.
  • Þú getur oft Ctrl-smellt / ⌘-smellt til að opna tengda færslu í nýjum glugga.

Reitir efst á spjaldi

Nafnaskrá

Birtist á ytri vef:

Hér tengir þú aðila við aðfangið, t.d. höfund, ljósmyndara, gefanda eða skrásetjara. Veldu hlutverk og/eða tileinkun eftir því sem við á.

Vægi stýrir röðun. Aðili með Vægi 1 birtist fyrst, bæði í hópreit og oft á ytri vef.

Athugið

Ef þú vilt ekki birta t.d. gefanda á ytri vef er betra að skrá slíkt í Aðfangaskrá – Eigendasaga.

Nafnaskrá

Efnisorð / Heiti

Birtist á ytri vef: Já, stundum sem fyrirsögn ef titill er ekki til staðar

Veldu fyrst tegund og síðan efnisorð. Þegar þú byrjar að skrifa birtast tillögur sem passa við. Einnig er hægt að smella á táknið hægra megin til að opna valglugga.

  • Smelltu á plúsinn til að bæta við fleiri efnisorðum.
  • Ef titill vantar getur efnisorð orðið titill á ytri vef. Settu þá það efnisorð sem á að birtast fyrst í Vægi 1.

Samræmi í efnisorðum

Ef þú sérð tvítekin eða mjög lík efnisorð, láttu vita svo hægt sé að sameina þau og bæta leitanleika.

Efnisorð

Flokkun

Birtist á ytri vef:

Veldu tegund/flokk. Reiturinn Gerð og valmöguleikar breytast eftir því hvaða flokkur er valinn. Ef bæta þarf við nýjum gildum er það gert af starfsfólki RS.

Flokkun

Safnnúmer

Birtist á ytri vef:

Veldu fyrst Númerakerfi til að fá rétta reiti. Hvert safn getur verið með sitt númerakerfi og stundum sjálfvirka talningu.

  • Vægi stýrir hvaða safnnúmer birtist fyrst.
  • Smelltu á plúsinn til að bæta við fleiri númerum.
  • Mælt er með að velja Tegund ef hún á að birtast skýrt með númerinu.

Safnnúmer

Titill

Birtist á ytri vef: Já, oft sem fyrirsögn

Veldu tegund titils og skráðu titilinn. Titill er oft það fyrsta sem notandi sér á ytri vef.

Titill

Aldur / Tímabil

Birtist á ytri vef: Já, ef tegund = Aldur

Hér er hægt að velja fyrirfram skilgreind tímabil eða skrá aldur í reitina Frá og Til.

  • nákvæma dagsetningu, t.d. 25.08.1876
  • mánuð og ár, t.d. 08.1876
  • bara ár, t.d. 1876

Tímabil listi

Efni / Tækni

Birtist á ytri vef:

Veldu tegund til að stýra hvaða orðasafn birtist. Hægt er að skrá fleiri en eitt efni eða tækni með plúsnum.

Tegundalisti

Orðasafn

Valið gildi

eMuseumPlus

Birtist á ytri vef: Já, sem slóð á færslu

Hér birtist slóð á aðfangið á ytri vefnum. Slóðin verður til sjálfkrafa þegar færslan er vistuð og er hægt að afrita hana eða opna aðfangið á vefnum.

eMuseumPlus slóð

Rafræn skjöl – hlaða upp

Birtist á ytri vef: Já, ef birting er leyfð á mynd/skjali

  1. Opnaðu aðfangið og veldu Rafræn skjöl hægra megin eða smelltu á + við myndasvæðið.
  2. Smelltu á + eða dragðu og slepptu skrám.
  3. Stilltu aðalmynd með því að hægrismella og velja Setja sem sjálfgefna mynd.
  4. Til að uppfæra eða eyða skrá: hægrismelltu á skrána og veldu viðeigandi aðgerð.
  5. Ef skrá á ekki að birtast á ytri vef þarf að stilla Internet/Birta á sjálfri myndinni í einingunni Rafræn skjöl.

Rafræn skjöl

Flipi: Grunnupplýsingar

Ath.: Sumar aðfangategundir hafa ekki sömu grunnupplýsingar.

Stærðir

Birtist á ytri vef:

Veldu mælieiningu og skráðu stærðir, t.d. þyngd, ummál eða aðrar mælingar. Eftir breytingar er gott að smella á Uppfæra forskoðun. Sláðu inn * til að sjá allar mælieiningar í boði.

Stærðir

Staðaskrá

Birtist á ytri vef: Já, yfirleitt fyrsta innleggið

Veldu stað úr Staðaskrá Sarps. Ef staður finnst ekki þarf að skrá hann í staðaskrá fyrst. Til að fjarlægja valinn stað smellir þú á X.

Staðaskrá

Lýsing

Birtist á ytri vef:

Skráðu lýsingu á aðfanginu. Fyrir langan texta getur þú notað stækkunarglerið í reitnum.

Lýsing

Aðrar upplýsingar

Birtist á ytri vef: Að hluta, t.d. Heimildir og Sýningartexti

Smelltu á plúsinn fyrir framan reitinn og veldu tegund upplýsinga.

  • Höfundur tengist Samstarfsaðilum. Ef nafnið finnst ekki þarf að skrá aðilann þar.
  • Heimildir og Sýningartexti birtast á ytri vef.

Aðrar upplýsingar

Hnit

Birtist á ytri vef: Já, sem kort ef hnit eða staður eru tengd

Veldu hnitakerfi, yfirleitt Ísnet 93, og skráðu hnit með punkti, ekki kommu. Ef hnit vantar getur kort stundum byggst á tengdum stað úr Staðaskrá.

Hnit

Birta á vef

Birtist á ytri vef: Stýrir birtingu

Hér velur þú hvort færslan eigi að birtast á ytri vef.

Ábendingar í stuttu máli
  • Vægi skiptir máli í Nafnaskrá, Efnisorðum og Safnnúmerum.
  • Rafræn skjöl: stilltu aðalmynd og athugaðu birtingu á sjálfri myndinni.
  • Hnit: veldu hnitakerfi og notaðu punkt, ekki kommu.
Algengar villur
  • Efnisorð: titill vantar og ekkert vægi er stillt.
  • Rafræn skjöl: skrá birtist óvart vegna birtingarstillinga.
  • Hnit/kort: vantar hnitakerfi eða notuð er komma í stað punkts.
  • Staðaskrá: staður þarf að vera til í Staðaskrá áður en hann er valinn.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina