Undirskrár - yfirlit og notkun

Breytt Tue, 14 Apr kl 12:08 PM

Undirskrá er skrá yfir aðföng sem eiga saman á einhvern hátt, t.d. gjöf, dánarbú, öll verk listamanns eða ljósmyndara o.þ.h. Undirskrár úr Sarpi 3 voru allar fluttar yfir. Tilgangur með einingunni í Sarpi 4 er örlítið öðruvísi þannig, virkar meira eins og safn eða "Collection".


Búa til undirskrá

  1. Opnaðu Safnkostur- Undirskrár í valmynd.
  2. Ef hún sést ekki: opnaðu „hamborgara“-valmynd (☰) og virkjaðu flipann.
  3. Smelltu á plúsinn Búa til og gefðu Titil og lýsingu og fleira ef á við
  4. (Valkvæmt) Bættu við forsíðumynd í Rafræn skjöl hægra megin (sjálfgefin mynd birtist í myndasýn).
  5. Smelltu á Vista.

Bæta aðföngum í undirskrá

  • Beint inn: Í töflunni Tengd aðföng+ → leita að safnnúmeri/heiti → Velja.
  • Úr leitarniðurstöðum: Gerðu leit í Aðföngum (hægra megin) → merktu línur (með því að halda inni Ctrl og smella á viðeigandi aðföng, shift til að velja margar í röð/allar → draga & sleppa yfir í undirskrána (tengd aðföng töfluna).
  • Með vistaðri leit: Keyrðu vistaða leit í Leit aðföng hægra megin → draga og sleppa yfir í Tengd aðföng í undirskránni
  • Undir skráningu aðfangs er einnig hægt að tengja beint við undirskrá. Það er gert undir flipanum Tengd aðföng- Undirskrár. Þá er smellt á plúsinn og leitað eftir nafni undirskrárinnar.

Skoða og vinna úr undirskrá

  • Ef smellt er á línurnar þrjár í efra hægra horni í töflunni Tengd aðföng er hægt að taka úr færslurnar í excel
  • Flytja út: notaðu Flytja út hnappinn neðst til að fá út skýrslu yfir aðföngin í undirskrá
Ábendingar
  • Gefðu lýsandi heiti (t.d. „Stofngjöf).
  • Notaðu leit til hægri, jafnvel vistaða leit til að tengja mörg aðföng í einu við undirskránna. Mikill tímasparnaður.
Algengar villur
  • „Færslur hverfa úr möppu“ — ekki vistað eftir breytingar eða rangt valið. Lausn: Vista reglulega.
  • „Finn ekki undirskrá“ — leitað í rangri einingu/módúl. Lausn: farðu í Safnkostur-Undirskrár og notaðu leit/síur þar.
  • „Forsíumynd birtist ekki“ — ekki stillt sem sjálfgefin mynd. Lausn: hægrismella á mynd → Setja sem sjálfgefna eða draga hana yfir.
Sjá einnig
  • Vinnumöppur – yfirlit og umsjón
  • Búa til og vista sérsniðnar töflur
  • Flytja út gögn úr Sarpi
  • Hlaða upp rafrænum skjölum í aðfang

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina