Vinnumöppur - yfirlit og umsýsla

Breytt Wed, 20 Maí kl 3:00 PM

Vinnumappa er tímabundin vinnueining til að safna saman aðföngum fyrir afmarkað verkefni – t.d. yfirferð, hreinsun gagna, undirbúning sýningar eða birtingu á vef. Vinnumöppur henta vel þegar velja þarf saman marga gripi, samræma skráningu, yfirfara stöðu eða flytja út lista.

Nafnahópar eru sambærilegir hópar fyrir færslur úr Nafnaskrá. Í stað þess að búa til möppu fyrir aðföng er hægt að búa til hóp fyrir nöfn, til dæmis alla listamenn, alla ljósmyndara eða aðra aðila sem þarf að halda utan um.

Mundu
  • Vinnumöppur eru fyrir aðföng.
  • Nafnahópar eru fyrir nöfn úr Nafnaskrá.
  • Hvort tveggja getur nýst við yfirferð, samræmingu og undirbúning verkefna.

Búa til og tengja við vinnumöppu

  1. Opnaðu Vinnumöppur í valmynd: Safnkostur → Vinnumöppur.
  2. Smelltu á plúsinn Búa til og gefðu möppunni heiti og stutta lýsingu.
  3. Ef hakað er í Læst sérð þú möppuna eingöngu, ekki aðrir starfsmenn safnsins.
  4. Hægt er að tengja skjöl og myndir við vinnumöppuna undir Rafræn skjöl til hægri.
  5. Bættu við færslum:
    • Beint inn: Í töflunni Aðföng+ → leita að safnnúmeri/heiti → Velja.
    • Úr leitarniðurstöðum: Gerðu leit í Aðföngum hægra megin → merktu línur með því að halda inni Ctrl og smella á viðeigandi aðföng. Notaðu Shift til að velja margar færslur í röð → dragðu og slepptu yfir í töfluna Aðföng í vinnumöppunni.
    • Með vistaðri leit: Keyrðu vistaða leit í Leit aðföng hægra megin → dragðu og slepptu niðurstöðunum yfir í Aðföng í vinnumöppunni.
    • Undir skráningu aðfangs er einnig hægt að tengja beint við vinnumöppu. Það er gert undir flipanum Tengd aðföng – Vinnumöppur. Þar er smellt á plúsinn og leitað eftir nafni vinnumöppunnar.
  6. Smelltu á Vista.

Nafnahópar

Nafnahópar virka á svipaðan hátt og vinnumöppur, en í stað þess að safna saman aðföngum er hægt að safna saman nöfnum úr Nafnaskrá. Þetta getur verið gagnlegt þegar halda þarf utan um ákveðinn hóp einstaklinga eða aðila, til dæmis listamenn, ljósmyndara, höfunda, gefendur eða aðra sem tengjast skráningu safnsins.

Dæmi
  • Hópur fyrir alla listamenn sem tengjast ákveðnu verkefni eða yfirliti.
  • Hópur fyrir alla ljósmyndara sem þarf að yfirfara eða samræma skráningu á.
  • Hópur fyrir nöfn sem á að skoða sérstaklega, til dæmis vegna tvískráninga eða samræmingar.
  • Hópur fyrir alla höfunda eða gefendur sem tengjast tilteknu verkefni.

Búa til og tengja við nafnahóp

  1. Opnaðu Vinnumöppur í valmynd.
  2. Smelltu á plúsinn Búa til og veldu nafnahópur
  3. Gefðu hópnum skýrt heiti og, ef við á, stutta lýsingu.
  4. Leitaðu að nöfnum úr hægri hliðarflipa og bættu þeim við hópinn.
  5. Smelltu á Vista.

Skoða og vinna úr

  • Leit og síur: finndu vinnumöppur eða nafnahópa eftir heiti, númeri eða innihaldi.
  • Ef smellt er á línurnar þrjár í efra hægra horni í töflunni Aðföng er hægt að taka færslurnar út í Excel.
  • Flytja út: notaðu Flytja út hnappinn neðst til að fá út skýrslu yfir aðföngin í vinnumöppu/nafnahópi.
Ábendingar
  • Hugsaðu vinnumöppur sem verkefnamöppur – ekki varanlegar skrár.
  • Gefðu skýr heiti, t.d. „Gæðayfirferð – ljósmyndir 2026“.
  • Skiptu stórum verkefnum í smærri vinnumöppur, til dæmis eftir árabili, sýningarhluta eða skráningarverkefni.
  • Notaðu Nafnahópa þegar vinna þarf með ákveðna hópa í Nafnaskrá, til dæmis listamenn.
Algengar villur
  • „Færsla fór ekki með“ — færsla var dregin yfir en ekki vistuð. Lausn: staðfestu með Vista.
  • Réttindi — sumar aðgerðir, t.d. að eyða, krefjast aukinna réttinda.
Sjá einnig
  • Undirskrár – yfirlit og notkun
  • Leit í aðföngum
  • Nafnaskrá – yfirlit og skráning
  • Búa til og vista sérsniðnar töflur
  • Flytja út gögn úr Sarpi
  • Rafræn skjöl – hlaða upp og finna skrár

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina