Skrásett tengir saman Aðföng við Sýningar og Samninga og geymir upplýsingar um aðfangið í samhengi tiltekinnar sýningar eða samnings/láns. Hugsaðu Skrásett sem verkefnaskrá grips: sama aðfangið getur haft ólíkar upplýsingar eftir því í hvaða verkefni/láni það er.
MIKILVÆGT
Þú býrð ekki til Skrásett-færslu handvirkt. Hún verður sjálfkrafa til þegar aðfangi er bætt á Sýningu eða í Samning.
Hvernig verður Skrásett-færsla til?
Skrásett-færsla verður sjálfkrafa til þegar:
- aðfangi er bætt á Sýningu
- aðfangi er bætt í Samning
Af hverju er þetta sér eining?
Sami gripur getur verið í mörgum sýningum eða mismunandi lánum og haft mismunandi tryggingar og mismunandi meðhöndlun eftir verkefnum. Þess vegna getur sama aðfang komið oftar en einu sinni fyrir í Skrásett.
Hvað er skráð í Skrásett?
- staða aðfangs (t.d. „Í láni“ / „Skilað“)
- tryggingar, skilmálar og lánsgjöld
- flutningar og ástand (komu-/skilástand, athugasemdir)
- meðhöndlun og framsetning (sýningarsértækar leiðbeiningar)
Helstu reitir
Mundu: Tegund aðfangs breytist sjaldan, en Staða breytist yfir tíma eftir því hvað gerist í verkefninu.
| Reitur | Hvað þýðir hann? | Dæmi / hvenær nota |
|---|---|---|
| Tegund aðfangs | Segir hvers eðlis verkefnið er (tengist inn-/útflæði). Breytist yfirleitt ekki nema verkefni breytist í grunninn. | Safngripur (í safneign) / Útlán / Innlán. |
| Staða | Segir stöðu aðfangsins í þessu verkefni. Breytist yfir tíma. | Óskað eftir / Innanhús / Í láni / Skilað. |
| Forgangur | Vinnuforgangur til að raða og sía í töflusýn/vistaðri leit. | Hár: flutningur á næstu dögum / árekstur. Miðlungs: óklárað. Lágur: ekkert aðkallandi. |
| Hluti / þema | Valfrjálst. Flokkar aðföng innan einnar sýningar (sýningarsértækt). | Nota þegar sýning er skipt í hluta/þemu. Skildu eftir tómt ef engin skipting er til staðar. |
| Rými | Staðsetning aðfangs í verkefninu (t.d. salur, geymsla, móttökustaður). | „Sýningarsalur 1“, „Geymsla A“, „Forvarsla“ eða heiti móttökusafns. |
Flipar í Skrásett
Tryggingar / Lánsgjald
Tengja við samning, stofna samning, skrá tryggingar og lánsgjöld og (ef við á) afrita tryggingarverðmæti úr Aðföngum.
Atburðir / Árekstrar
Sýnir skörun eða árekstra í dagsetningum og aðra staði/viðburði. Smelltu á Uppfæra til að endurreikna.
Ástand / Flutningar
Skrá komuástand og ástand við skil/til baka, tengingar við Flutninga og (ef við á) búa til ástandsskýrslu (Forvarsla).
Meðhöndlun
Hakaðu við viðeigandi meðhöndlunar- og öryggisatriði og settu nánari leiðbeiningar í textareiti (sýningarsértækt).
Við sýningu
Skráðu hvernig aðfang á að vera sýnt (staðsetning, uppsetning, skápur/stallur o.s.frv.) og aðrar framsetningarupplýsingar.
Flýtivísun – skoða öll aðföng í sama láni / sýningu
Í Skrásett-færslu geturðu notað Flýtivísun (efst til hægri) til að opna yfirlit yfir öll aðföng sem tengjast sama samningi eða sömu sýningu.
FLÝTIVÍSUN
- Opnaðu Skrásett-færslu sem er tengd samningi eða sýningu.
- Smelltu á flýtileið (t.d. „… í stjórnborði“ eða „… í töflusýn“).
- Veldu sýni:
- Stjórnborð (Board) – gott til að sjá stöðu (t.d. „Í láni“ / „Skilað“).
- Töflusýn (Table) – gott til að bera saman reiti, sía og flytja út.
Ábending: Í Töflusýn er oft gagnlegt að sía eftir Stöðu og raða eftir Forgangi ef eitthvað er óklárað.
Dæmi um vinnuferli – lán með mörgum aðföngum
Hér er dæmi um algengt ferli þegar mörg aðföng eru í sama láni og staða er uppfærð fyrir hvert aðfang eftir því sem það fer út eða er skilað.
- Stofna samning/lán og fylla út helstu upplýsingar (aðilar, dagsetningar, skjöl).
- Tengja aðföng við samninginn. Fyrir hvert aðfang myndast Skrásett-færsla.
- Í Skrásett-færslum stillir þú:
- Tegund aðfangs (Útlán eða Innlán eftir því sem á við)
- Staða = Í láni þegar aðfang fer af stað
- (ef þarf) Ástand og/eða ástandsskýrsla
- Nota flýtileið til að opna yfirlit yfir öll aðföng í láninu og fylgjast með stöðu.
- Þegar eitt aðfang er skilað:
- Opnaðu Skrásett-færsluna fyrir viðkomandi aðfang.
- Settu Staða = Skilað.
- Skráðu komuástand og bættu við ástandsskýrslu ef þörf er á.
Athugið: Aðfang getur áfram verið tengt samningi þó það sé skilað. Þú ert að uppfæra stöðu aðfangsins í Skrásett (ekki að fjarlægja það úr samningi).
Ábending: Búðu til vistaða leit (t.d. „Í láni“) til að fylgjast reglulega með öllum Skrásett-færslum sem eru enn í vinnslu.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina