Lán og samningar - tengingar við aðföng

Breytt Tue, 3 Mar kl 4:26 PM

Hvað eru Samningar?

Samningar halda utan um formleg lán í kerfinu – bæði innlán og útlán (og eftir atvikum: kaup/leigu).

Samningur skilgreinir meðal annars:

  • hverjir eru aðilar að láninu
  • lánstíma (frá–til)
  • skilmála og ábyrgð
  • tryggingar, gjöld og skjöl

Samningur getur:

  • staðið sjálfstætt, eða
  • verið tengdur sýningu (ef lán tengist ákveðinni sýningu)

MIKILVÆGT

Samningar halda utan um lánið í heild. Upplýsingar sem varða tiltekið aðfang í samhengi lánsins (t.d. staða, meðhöndlun, tryggingar, ástand) eru skráðar í Skrásett (Registrar).

Svona virka lán í Sarpi

  1. Samningur er stofnaður (eða opnaður til breytinga).
  2. Aðföng eru tengd við samning.
  3. Fyrir hvert aðfang verður til Skrásett-færsla.
  4. Sértækar upplýsingar eru skráðar í Skrásett (t.d. tryggingar, skilmálar, meðhöndlun).
  5. Staða aðfanga er uppfærð í Skrásett eftir því sem lánið þróast.
  6. Aðföng eru skilað og staða uppfærð í Skrásett (t.d. Staða = Skilað).

Skrá eða breyta samningi — skref fyrir skref

  1. Smelltu á Búa til (eða opnaðu samning til breytinga).
  2. Fylltu út lykilreiti:
    • Tegund (útlán/innlán/kaup/leiga) og Samningsnúmer
    • Lánveitandi og Lántakandi (skráðir í Samstarfsaðilar)
    • Upphafsdagur og Lokadagur samnings
    • Forvarsla (ef við á)
    • Rannsókn / Greiningar (ef um er að ræða fornleifarannsóknir)
  3. Hlaða upp Rafrænum skjölum (samningsdrög, undirrituð skjöl, tryggingavottorð o.fl.).
  4. Smelltu á Vista.

Tengja aðföng við samning

  • Úr leitarniðurstöðum hægra megin: leitaðu eftir safnnúmeri eða notaðu vistaða leit og dragðu aðföngin inn í töfluna Tengd aðföng.
  • Úr vinnumöppu (ef við á): keyrðu leit eftir Vinnumöppum og dragðu öll aðföngin í einu inn á samninginn.

Athugið: Fyrir hvert tengt aðfang er hægt að skrá sértækar upplýsingar í Skrásett (Registrar) – t.d. tegund aðfangs, stöðu, umbúðir, meðhöndlun, tryggingar og ástand.

Ef aðfang er skilað: opnaðu viðkomandi Skrásett-færslu og veldu Staða = Skilað.

Staða í Skrásett

Fjarlægja aðfang úr samningi (ef rangt aðfang var tengt)

Ef rangt aðfang var tengt við samning er öruggast að fjarlægja tenginguna (ekki eyða aðfanginu).

  1. Opnaðu Skrásett-eininguna.
  2. Finndu viðkomandi Skrásett-færslu.
  3. Haltu mús yfir nafn samningsins (tenginguna).
  4. Smelltu á litla X-ið.
  5. Smelltu á Vista.

Athugið: Þú ert eingöngu að fjarlægja tenginguna við samninginn – ekki að eyða aðfanginu eða grunnskráningu þess.

Fjarlægja tengingu við samning

Flýtileið úr samningum

Til að skoða aðföng tengd samningi á einfaldan hátt geturðu smellt á Flýtivísun (efst hægra megin á færsluspjaldinu). Þar geturðu valið að skoða yfirlit í Töflusýn eða á Stjórnborði (Board).

Veldu t.d. Skoða í töflu til að bera saman reiti, sía og (ef þarf) flytja út.

Flýtivísun í samningum

Mikilvægt að muna

Samningar halda utan um lánið.
Skrásett heldur utan um hvert aðfang í láns-/sýningarsamhenginu.

  • Sami samningur getur tengst mörgum aðföngum.
  • Sama aðfang getur komið oftar en einu sinni í Skrásett ef það er í fleiri en einu láni eða sýningu.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina