Búnaður í Sarpi er notaður til að skrá og fylgjast með ýmsum fylgihlutum, umbúðum eða öðrum aukahlutum sem tengjast aðföngum. Þessi eining er gagnleg bæði fyrir innanhúsnotkun og við flutninga, þar sem hægt er að fylgjast með staðsetningu, ástandi og tengslum við aðföngin.
Upptaka frá örnámskeiði um Flutning og búnað
Skrá eða breyta — skref fyrir skref
- Búa til: Smelltu á plúsinn- Búa til og veldu:
- Umbúðir – kassar/umbúðir sem geta innihaldið aðföng.
- Búnaður – aðrir fylgihlutir t.d. skjávarpi (geta ekki innihaldið hluti en hægt er að tengja við aðföng ef þarf).
- Fylltu út helstu reiti:
- Tegund – t.d. skilrúm, sýningartjald, karfa, kassi.
- Strikanúmer og Breyta strikanúmeri – kerfisstrikamerki eða eigið númer.
- Númer á búnaði – innanhús númer ef við á.
- Heiti og Lýsing.
- Stærðir – t.d. ytri/innri mál.
- Efni, Umbúðir (pökkunaruppl.), Flutningar (ráðleggingar).
- Athugasemdir.
- Staðsetning og samhengi:
- Núverandi staðsetning – uppfærist sjálfkrafa við flutning.
- Varanlegur varðveislustaður – „heimastaður“ búnaðar.
- Pakkað í – sýnir hvort að viðkomandi kassi sé í öðrum kassa eða hægt að nota reitinn til að setja kassann í annan kassa.
- Skanna – Staðsetjið bendil hér ef skanni og strikamerki eru notuð, t.d. til að skanna gripi sem eiga að fara ofan í kassann eða breyta staðsetningu kassans.
- Fjarlægja - Hakað í ef fjarlægja á grip úr kassa, bendill svo settur í Skanna reitinn og viðeigandi gripir skannaðir sem fjarlægja á úr kassanum.
- Pökkun (aðeins fyrir umbúðir):
- Skanna gripi og Vista til að „pakka gripum í kassann“.
- Einnig hægt að leita í hægri leitarstikunni og draga & sleppa í kassann. T.d. vera búin að sækja alla gripi í vinnumöppu.
- Myndir & skjöl: Hlaða inn og stilla aðalmynd ef við á.
- Vista: Vista reglulega, sérstaklega eftir skönnun eða pökkun.
Framsetning gagna
- Ítarleg sýn – allir reitir og tengingar.
- Töflusýn – bera saman marga búnaði/kassa og flytja út.
Tengingar
- Flutningar – uppfæra varðveislustað sjálfkrafa.
- Pökkunarstig – gripur → í kassa → kassi í annan kassa → á vörubretti.
- Búnaður (ekki umbúðir) – vísar í Aðföng, Sýningar og Flutninga en inniheldur ekki hluti.
Ábendingar
- Umbúðir (kassar) þurfa alltaf að hafa núverandi staðsetningu áður en hægt er að pakka í þær.
- Breyta strikanúmeri nýtist ef safnið notar eigin númeraraðir.
Algengar villur
- Valin „Búnaður“ þegar á að pakka → ekki hægt að bæta grip í. Lausn: velja Umbúðir.
- Vantar núverandi stað → ekki hægt að pakka. Lausn: bæta inn staðsetningu.
- Gleyma að vista eftir skönnun/pökkun → tengingar vistast ekki.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina