Flutningar eru fyrir fjöldafærslur (aðföng, búnaður, umbúðir). Þegar þú framkvæmir flutning uppfærist núverandi staðsetning og staðsetningarsaga.
Gott að hafa í huga
- Þú getur unnið með eða án strikamerkja.
- Með strikamerkjum þarf aðfang/búnaður/staðsetning að vera með strikamerki.
- Hægt er að búa til fyrirhugaðan flutning þó ekki eigi að færa tengda gripi strax
Búa til flutning
- Opnaðu Flutningar, smelltu á plúsinn → Búa til.
- Fylltu út í viðeigandi reiti.
Bæta við gripum
- Skannaðu grip/búnað/umbúðir, eða dragðu inn úr leitarglugga hægra megin.
Velja stað og framkvæma
- Veldu (eða skannaðu) nýja staðsetningu ef allir gripirnir eru að fara á sama staðinn.
- Veldu aðgerð (oft „Færa á nýjan stað“).
- Einnig er hægt að velja aðgerðirnar Færa til baka á fyrri varðveislustað eða Færa til baka á varanlegan varðveislustað. T.d. notað þegar verið er að skila gripum og þeir eru allir að fara á mismunandi varðveislustaði.
- Smelltu á Framkvæma → Vista.
- Ath einnig er hægt að búa til fyrirhugaðan flutning, þá er staða valin sem fyrir huguð og vistað. Hægt er að vinna í flutningnum og bæta aðföngum eftir þörfum - þá er ekki ýtt á "Framkvæma" fyrr en aðföngin eiga að flytjast.
Núverandi staðsetning = hvar hluturinn er núna. Varanleg staðsetning = „heimastaður/varanlegur“.
Kassar (umbúðir)
- Skannaðu eða færðu "efsta kassann" — þá fylgir allt innihald.
- Afpakkað er handvirkt í Búnaði, t.d. ef kassi er tekinn upp úr kassa og færður annað
Athugið: Ekki er hægt að afturkalla eftir að ýtt er á Framkvæma.
Upptaka frá örnámskeiði
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina