Algengar spurningar: Flutningur og búnaður

Breytt Tue, 28 Apr kl 12:13 PM

Hvernig nota ég Flutninga fyrir fjöldafærslur (og vinnumöppur)?

Flutningar eru hentugir þegar þú þarft að færa marga gripi í einu. Best er að vinna með vinnumöppur eða afmarkað leitarúrtak svo þú sért alltaf viss um hvaða gripir fylgja flutningnum.

  • Búðu til vinnumöppu eða vistaða leit.
  • Opnaðu Flutningar og veldu Ný færsla.
  • Finndu vinnumöppuna/vistuðu leitina hægra megin undir aðföng. Ath að nota nánari leitina hægra megin. Dragðu öll aðföngin inn í færsluna.  
  • Veldu að lokum nýjan varðveislustað.

Ábending: Ef gripir eru pakkaðir í kassa er oft fljótlegra að skanna kassann (ef hann er með strikamerki) frekar en hvern grip.

Hvernig skrái ég flutning?

  1. Farðu í Flutningar.
  2. Veldu Ný færsla.
  3. Bættu við aðföngum (skanna eða velja úr úrtaki).
  4. Skráðu nýja staðsetningu.
  5. Smelltu á Vista.

Hvernig breyti ég staðsetningu margra aðfanga í einu?

Notaðu Flutninga í stað þess að breyta hverju aðfangi fyrir sig. 

Get ég notað strikamerki við flutning?

Já, þú getur skannað aðföng eða kassa til að uppfæra varðveislustaðinn þeirra. 

Hvað er Búnaður?

Búnaður er fylgihlutur sem tengist aðföngum (t.d. sýningarbúnaður, skjávarpi, stólpar ofl.) Þetta eru ekki „umbúðir“ sem innihalda aðföng.

Hver er munurinn á Búnaði og Umbúðum?

  • Umbúðir geta innihaldið aðföng (þ.e. þú „pakkar í“).
  • Búnaður er fylgihlutur sem inniheldur ekki aðföng.

Af hverju get ég ekki pakkað í kassa?

  • Athugaðu hvort færslan sé skráð sem Umbúðir (ekki Búnaður).
  • Athugaðu að Varðveislustaður sé skráður. Þetta er nauðsynlegur reitur.

Fyrir fjöldafærslur – notaðu alltaf Flutningur-eininguna.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina