Nafnaskrá – yfirlit og skráning

Breytt Tue, 3 Mar kl 12:32 PM

Nafnaskrá geymir upplýsingar um einstaklinga og fyrirtæki/stofnanir sem tengjast aðföngum í Sarpi (t.d. höfundar, ljósmyndarar, gefendur, listamenn). Rétt og samræmd skráning eykur leitarmöguleika og dregur úr tvíverknaði í öðrum einingum.

Hvar finn ég Nafnaskrá?

  • Opnaðu Nafnaskrá í valmynd (undir Safnkostur).
  • Sést hún ekki? Opnaðu valmyndina (☰) og virkjaðu flipann.

Skrá eða breyta nafni

  1. Leita fyrst. Nota heildarleit eða nánari leit til að forðast tvískráningu.
  2. Búa til ef ekkert finnst: velja + Búa til og rétt form (einstaklingur eða fyrirtæki/stofnun).
  3. Ef um íslenskan einstakling er að ræða, byrja í reitnum Þjóðskrá (kennitala eða nafn). Finnist ekki samsvörun – athuga hvort viðkomandi sé þegar skráður eða stofna nýja færslu.
  4. Vista.

Helstu skráningarreitir

  • Fornafn - Millinafn - Eftirnafn 
  • Dagsetningar – fæðingar- og dánardagur (dd.mm.áááá). Ath bæði fæðingardagur og dánardagur er skráður í FRÁ reitinn.
  • Staða – starf/titill (birtist á ytri vef).
  • Staðaskrá – tenging við viðeigandi stað.
  • Tilvísanir - Fjölskyldutengsl – tengsl milli einstaklinga (birtist á vef).
  • Heimildaskrá – tengdar heimildir (birtist á vef).
  • Ekki birta á vef – haka við ef nafn á ekki að birtast.

Tengingar við aðrar einingar

  • Aðföng – höfundur, ljósmyndari, gefandi o.fl.
  • Staðaskrá – hvort aðili tengist ákveðnum stað.
  • Sýningar – sýningar sem tengjast aðilanum.
  • Tengiliðir - T.d ef um fyrirtæki er að ræða er hægt að setja tengilið hér eða t.d. tengilið við dánarbú.
Ábendingar
  • Nota fullt nafn og rétta stafsetningu.
  • Fylltu út dagsetningar þar sem við á, alltaf í FRÁ reitinn.
  • Leitaðu alltaf áður en ný færsla er stofnuð.
Algengar villur
  • Tvískráning – alltaf leita fyrst.
  • Ósamræmi í nafni (t.d. skammstafanir).
  • Leitað í rangri einingu.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina