Flytja út gögn úr Sarpi

Breytt Mon, 17 Nóv kl 12:25 PM

Útflutningur úr töflusýn í xls skilar niðurstöðum leitar eins og þær sjást í töflunni: valdir dálkar, núverandi röðun og virkar síur ráða efni excel skráarinnar. Hér að neðan eru skref, ábendingar og lausnir á algengum vandamálum. Útflutningur í tilbúnar skýrslur (word eða xls) eru fyrirframskilgreind sniðmát sem unnin eru af sérfræðingum Rekstrarfélags Sarps. 

Undirbúningur

  • Veldu rétta einingu (t.d. Aðföng, Rafræn skjöl, Nafnaskrá).
  • Notaðu grunnleit og síðan nánari leit ef þarf
  • Skiptu yfir í Töflusýn og stilltu dálka og röðun (gott að nota vistaða töflusýn).

Flytja út — úr töflusýn

  1. Úr valmyndinni í töflusýn: opnaðu valmyndina og skrollaðu neðst í listanum. Veldu hvort á að flytja út allar færslur úr niðurstöðunum eða aðeins valdar færslur - þ.e. þær sem smellt hefur verið á og eru bláar.
  2. Staðfestu útflutning. (Útflutningur fylgir völdum dálkum og núverandi röðun.)
  3. Ef skráin hleðst ekki niður gæti þurft að leyfa "pop up" í vafranum þínum. Þetta þarftu bara að gera einu sinni.

Flytja út - í skýrsluformi (word eða excel t.d.)

  1. Neðst í valmyndinni og neðst í leitarniðurstöðum er ör sem snýr niður með striki undir. Smelltu á örina. 
  2. Nú getur þú valið fyrirframskilgreint skýrsluform til að fytja út, annaðhvort fyrir eina færslu eða margar (valdar)
  3. Athugaðu að skýrsluformin breytast eftir því í hvaða einingu þú ert
  4. Ef óskað er eftir ákveðnu formati þá vinsamlega hafið samband við sérfræðinga RS

Ábendingar
  • Stilltu dálka og röðun áður en þú flytur út (útflutningur speglar töflusýnina).
  • Notaðu vistaða leit + vistaða töflusýn til að fá endurtekinn, samræmdan útflutning.
  • Stór verk: skiptu í minni hluta ef útflutningur er þungur.
  • Gættu að réttindum í útfluttum gögnum; takmarkaðu dálka ef þú hefur ekki viðeigandi réttindi.
  • Þarfu sérstaka töflusýn? Búðu til sértæka töflu með nákvæmlega þeim dálkum og röð sem þú þarft. Hafðu samband við sarpurhjalp@landskerfi.is fyrir aðstoð við að gera sértækar töflur.
Algengar villur (og lausnir)
  • „Excel skjalið er tómt“ — virkar síur eða vistuð leit þrengir of mikið. Hreinsa og reyna aftur.
  • Íslenskir stafir brotna — skráin var opnuð án UTF-8. Notaðu Import og veldu UTF-8.
  • Dálkar renna saman — rangur Delimiter í Excel (stilltu á Comma eða það sem passar skránni).
  • Leiðandi núll hverfa (t.d. „00123“) — skilgreindu dálkinn sem Text við innlestur (ekki General).
  • Dagsetningar snúast (mm/dd ↔ dd/mm) — stilltu locale við innflutning eða lestu dálkinn sem Text.
  • Skýrslan stoppar og hleðst ekki niður - Þú hefur ekki réttindi á einhvern reit sem er í skýrslunni

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina