Dæmi um leitarskilyrði (með skjámyndum)
Hér eru dæmi um hvernig best er að leita eftir algengum leitarskilyrðum. Smelltu á hvert dæmi til að opna eða loka leiðbeiningum og skjámyndum.
Ábending
Ef þú sérð lás á færslum, þá vantar þig réttindi til að skoða tiltekna einingu (t.d. samning).
Leit í aðföngum
Hvaða gripir eru í láni (hjá minni stofnun eða utan stofnunar)?
Veldu leitarskilyrðið:
- Samningar → allar tilvísanir → Er ekki tómt
Þá sérð þú öll aðföng sem tengjast lánum.
Athugið: Ef þú sérð lás yfir færslum, hefur þú ekki réttindi til að skoða samninginn.

Hvaða gripir eru á sýningu?
Veldu leitarskilyrðið:
- Sýningar → allar tengingar við sýningar → Er ekki tómt

Finna öll aðföng tengd ákveðnum stað
Veldu leitarskilyrðið:
- Staðaskrá → Jafnt og → sláðu inn staðinn
Flýtileið: Ef þú ert með grip sem hefur rétta staðsetningu, geturðu hægrismellt á gírtáknið og valið: Leita eftir gildi – ný leit eða Leita eftir gildi – bæta við leit.


Leita eftir efni / tækni
Þegar þú velur leitarskilyrðið Efni / Tækni birtist oft sjálfkrafa skilyrðið „exists“. Smelltu þá á Ný til að velja rétta tegund og gildi.
Í nýjum glugga geturðu valið tegund (t.d. lit, efni, gerð ljósmyndar o.fl.).

Þú getur líka valið tegund beint ef þú veist nákvæmlega hvað þú ert að leita eftir.

Finna öll aðföng án mynda / rafrænna skjala

Takmarka leit við listamann / höfund

Leita eftir safnnúmerum
Til að leita eftir safnnúmerum er best að nota reitinn Safnnúmer A / B – vægi. Reiturinn þarf að innihalda sex tölustafi, þannig að stundum þarf að bæta 0 fyrir framan (eftir því hversu háar tölur eru í safnnúmerinu).

Athugið: Ef þú notar aðeins Safnnúmer A er líklegt að það slæðist með gildi eins og t.d. 100.

Hvernig er best að leita að aðföngum á ákveðnum varðveislustað?
Hér er stutt myndband sem sýnir hvernig þú leitar að aðföngum eftir varðveislustað.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina