Ábending: Ef þú færð ekki niðurstöður – fjarlægðu eitt skilyrði í einu og prófaðu aftur.
Af hverju finn ég ekkert eða of mikið?
- Athugaðu að þú sért í réttri einingu (t.d. Aðföng / Nafnaskrá / Staðaskrá).
- Byrjaðu vítt með villimerki *.
- Ertu að nota textaleit? Hún leitar miklu víðar en nánari leit.
- Þrengdu með Nánari leit.
- Hreinsaðu eldri skilyrði áður en þú byrjar nýja leit.
Af hverju fæ ég 0 niðurstöður?
- Of mörg leitarskilyrði
- Rangt safn valið
- Rangt skilyrði (t.d. „Jafnt og“ í stað „Inniheldur“)
- Leitað í röngum reit
Hvernig nota ég OR / AND / NOT?
Þú getur notað þessa skipanir til að stýra leit:
- OR – annað hvort (t.d. Reykjavík OR Akureyri)
- AND – bæði (t.d. málverk AND kona)
- NOT – útilokar (t.d. hestur NOT vagn)
Hvað þýðir „Er tómt“?
Finnur færslur þar sem ekkert er skráð í viðkomandi reit (t.d. engin mynd eða engin staðsetning).
Hvernig leita ég innan ákveðins safns?
Veldu safn í leitarglugganum áður en þú keyrir leitina.
Hvernig leita ég eftir safnnúmeri?
Notaðu reitinn Safnnúmer og veldu rétt skilyrði (oft „Inniheldur“).
Hvernig leita ég í texta (t.d. lýsingu eða heimildum)?
Veldu reit eins og Lýsing eða Heimildir og settu skilyrðið Inniheldur.
Hvernig leita ég eftir hlutverki eða kyni?
Notaðu nánari leit og veldu reiti úr Nafnaskrá.
Hvað gerir litla merkið (leitartréð)?
Merkið gefur þér möguleika á að velja reiti úr öðrum einingum (t.d. Nafnaskrá).
Byrjaðu alltaf einfalt – bættu við einu skilyrði í einu.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina