Hvernig finn ég vistaða leit?
- Vinstri stika → Vistuð Leit — sýnir leitir sem þú hefur aðgang að. Velur leit og hún opnast.
- Hægt er að bæta við skilyrðum og vista aftur. Gætið að hvort þið viljið yfirskrifa.
Vista leit (skref fyrir skref)
- Búðu til leit (í Grunnleit eða Nánari leit) og stilltu leitarskilyrðin eins og þú vilt.
- Undir nánari leit, neðst finnur þú Vista leit.
- Gefðu leitinni heiti.
- Veldu Einka (bara fyrir þig) eða Opin (sjáanleg í þínu safni) og staðfestu.
ATH að yfirskrifa ekki leit sem er núþegar til. Ef þú ert með ákveðna leit valda, eins og þessi hér að neðan þá er gott að byrja á að afrita leitina og vista hana svo með öðru nafni. Annars yfirskrifar þú leit hvort sem þú eða einhver annar af þínu safni bjó hana til.
Breyta leit, deila og afrita
- Ef þú bretir leit og ýtir á Vista þá yfirskrifar þú fyrri leit. Nota frekar Afrit svo þú haldir alltaf upprunalegu leitinni.
- Einka er einungis sjánleg þér; Opin er sýnileg starfsfólki á þínu safni.
Tengja við sérsniðna töflusýn
Stilltu dálka og röðun í Töflusýn og vistaðu töflusýnina . Í reitnum töflusýn undir Vista leit getur þú valið töfluna þína og hún opnast þá alltaf samhliða leitarniðurstöðunum.

Ítarleg notkun – samspil við nánari leit og hægri leit
- Opnaðu vistaða leit → Nánari leit til að fínstilla skilyrði og vista sem nýtt afbrigði.
- Í hægra hliðarflipa (t.d. Leit – aðföngum) er hægt að velja eina vistaða leit og vinna með þær niðurstöður.
- í sömu aðgerð (t.d. tengja,vista útlit, setja í möppu), eftir réttindum.
Hér má sjá hvernig unnið er með vistaða leit í hægri flipanum. T.d. ef finna þarf ákveðin aðföng til að tengja við töflur.

Ábendingar
- Vistaðu leitir sem einka nema þú sért viss um að aðrir vilji nota leitina líka.
- Flýtilegt: Eftir að þú opnar vistaða leit geturðu bætt við/fjarlægt skilyrði í Nánari leit og vistað nýja töflu.
Algengar villur- „Vistuð leit sést ekki“ — líklega vistuð sem einkaleit eða skortur á réttindum. Mögulega hefur einhver endurskýrt leitina, ef hún er opin leit.
- Engar niðurstöður — gömul sía/gildi enn í gildi. Hreinsaðu síur og keyrðu aftur.
- Ósamræmi í framsetningu — vantaði að vista töflusýn samhliða leitarforsendum.
- Yfirskrifa óvart — Notaðu Afrita þegar þú vilt halda eldri útgáfu.
Athugasemdir frá notendum – gagnleg atriði
- „Vistuð leit er fyrir allt safnið — vil velja flokk.“ — Bættu Tegund eða öðrum síum í nánari leit og vistað sem hana sem einka.
- „Er hægt að opna vistaða leit í Nánari leit?“ — já, keyrðu hana og opnaðu síðan Nánari leit til fínstillinga og og vistaðu sem einka fyrir þig.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina
