Leitarskilyrði og möguleikar

Breytt Wed, 6 Maí kl 12:03 PM

Við mælum með að skoða kennslumyndböndin um heildarleit og nánari leit hér.

Í stuttu máli

Leit í Sarpi skiptist aðallega í heildarleit, sem leitar vítt í þeirri einingu sem þú ert í, og nánari leit, þar sem þú getur afmarkað leit eftir ákveðnum reitum og skilyrðum. Oft gott að byrja vítt og þrengja síðan leitina eftir þörfum.

Heildarleit

Heildarleit leitar í öllum leitarbærum reitum í þeirri einingu sem þú ert í. Heildarleitina framkvæmir þú í reitnum Leit í vinstri stiku.

Heildarleit hentar þegar þú vilt byrja á einfaldri leit og skoða niðurstöður áður en þú þrengir leitina frekar. 

Ef þú færð of margar niðurstöður getur þú notað Nánari leit, Leita eftir gildi eða Atriðaskrá til að afmarka leitina betur.

Staðsetning grunnleitar 











Aðgerðir í heildarleit

Virkni

Lýsing

*

Stjarnan er staðgengill (wildcard) fyrir hvaða streng sem er. Ef þú slærð inn * í leitarreitinn er hægt að finna allar skrár í núverandi einingu. Hægt er að setja * í upphafi, í miðju eða í enda leitarorðs.

" "

Notaðu gæsalappir til að leita nákvæmlega að ákveðnu heiti eða ákveðinni röð hugtaka. Ef nokkur orð eru sett innan gæsalappa þurfa þau að koma fyrir í nákvæmlega sömu röð. Dæmi: “Olía” finnur Olía og Olía á pappír, en finnur ekki Olíur.

OR

OR finnur annaðhvort hugtakið eða bæði. Notaðu OR þegar fleiri en eitt orð getur átt við.

AND

AND þrengir leitina og finnur skrár þar sem bæði eða öll tilgreind orð koma fyrir.

NOT

NOT útilokar hugtök úr leitinni.


Nánari leit – afmarka eftir reitum

Þú finnur Nánari leit í vinstri stiku undir stækkunarglerinu. Nánari leit gerir þér kleift að búa til flóknari leitarskilyrði og leita í ákveðnum reitum, bæði í þeirri einingu sem þú ert í og í tengdum einingum.

Í nánari leit getur þú valið reiti og stillt skilyrði, t.d. jafnt og, inniheldur, er tómt eða er ekki tómt.

Nánari leit – val á reitum

Skilyrði í nánari leit

Virkni

Lýsing

Stærra enFinnur allar skrár með gildum sem eru stærri en tilgreint viðmið. Dæmi: 20.000 finnur allar skrár með gildi stærra en 20.000.
Stærra en eða jafnt ogFinnur allar skrár þar sem gildi er jafnt eða stærra en viðmiðið.
Minna enFinnur allar skrár þar sem gildi er minna en viðmiðið.
Minna en eða jafnt ogFinnur allar skrár þar sem gildi er jafnt eða minna en viðmiðið.
Jafnt ogFinnur allar skrár þar sem innihaldið samsvarar viðmiðinu.
Jafnt og (nákvæm orðröð)Leitaraðgerð fyrir texta- og sýndarreiti. Leitar nákvæmlega eftir uppgefna leitarorðinu, þar með talið sértáknum, án bila.
Jafnt og (Term)Finnur allar skrár þar sem hugtakssvæði samsvarar viðmiðinu.
Jafngildir ekki (Term)Finnur allar skrár þar sem ekkert hugtakssvæði samsvarar viðmiðinu.
Jafngildir ekkiFinnur allar skrár þar sem innihaldssvæði samsvarar ekki viðmiðinu.
Er tómtFinnur allar skrár þar sem svæði er ekki fyllt.
Er ekki tómtFinnur allar skrár þar sem svæði er fyllt.
InniheldurFinnur allar skrár þar sem einhver hluti innihaldssvæðis samsvarar viðmiðinu.
Inniheldur (nákvæm orðröð)Leitaraðgerð fyrir texta- og sýndarreiti. Leitar nákvæmlega eftir uppgefna leitarorðinu, þar með talið sértáknum, án bila.
Inniheldur ekkiFinnur allar skrár þar sem enginn hluti innihaldssvæðis samsvarar viðmiðinu.
Byrjar á (Term)Finnur allar skrár þar sem hvaða hugtaksinnihald sem er byrjar á viðmiðinu.
Byrjar áFinnur allar skrár þar sem innihaldssvæði byrjar á viðmiðinu.
Byrjar ekki áFinnur allar skrár þar sem innihaldssvæði byrjar ekki á viðmiðinu.
Byrjar ekki á (Term)Finnur allar skrár þar sem hugtaksinnihald byrjar ekki á viðmiðinu.

Leita eftir gildi

Leita eftir gildi – dæmi 1

Notaðu gírtáknið (⚙) sem birtist þegar farið er með músina yfir heiti á reit. Þar getur þú valið Leita eftir gildi - ný leit eða Leita eftir gildi - bæta við leit. til að leita eftir því gildi sem er í reitnum. ATH ný leit þurrkar út þá reiti sem núþegar eru í nánari leitinni.

Þessi leið er gagnleg þegar þú vilt vera viss um að leitað sé í réttum reit. Þegar þú velur gildið bætist reiturinn sjálfkrafa við Nánari leit, þar sem þú getur fínstillt skilyrðin.

Leita eftir gildi – dæmi 2


Með því að smella á gírhjólið er líka hægt að velja Atriðaskrá sem hjálpar til við að sjá hvaða atriði eru í boði í ákveðnum reit.

Flokkuð leit – byggð á niðurstöðum

Flokkuð leit opnast með kíkistákni í vinstri stiku, undir flipanum Leit. Hún er ekki mikið notuð í kerfinu, en getur nýst til að þrengja niðurstöður eftir flokkun sem byggir á þeim niðurstöðum sem þegar hafa fundist.

Efnisorðaskrá (Tesaurusvafri) – stýrð hugtök

Efnisorðaskrá býður upp á sérhæfða leit í stýrðum hugtökum. Veldu hugtakareit, t.d. Efnisorð, Tegund eða Staður. Í reitnum Hugtak eða mynstur birtist listi yfir atriði sem eru í boði í þeim flokki.

Efnisorðaskrá – vafri

Gott dæmi um notkun efnisorðaleitar er þegar finna á aðföng á ákveðnum varðveislustað.

Dæmi um efnisorðaleit eftir varðveislustað

Vistaðar leitir og leitarsaga

Allir notendur ættu að hafa vistaðar leitir á sínu safni. Hægt er að búa til eigin leit og vista hana til endurnotkunar. Sjá nánar hérVistaðar leitir og leitarsaga

  • Vistaðar leitir gera þér kleift að endurnýta sömu leitarskilyrði síðar.
  • Leitarsaga, við hliðina á Nánari leit, hjálpar þér að endurvekja nýlegar fyrirspurnir án þess að stilla allt upp á nýtt.
Ábendingar
  • Byrjaðu vítt og þrengdu síðan leitina.
  • Nýttu Atriðaskrá (⚙) í reit til að velja gildi sem eru til í gagnagrunninum.
  • Notaðu Leita eftir gildi (⚙) til að tryggja rétt gildi í nánari leit.
  • Hreinsa leit (Hreinsa leit tákn eða Endurstilla) áður en ný leit er keyrð kemur í veg fyrir að gömul skilyrði haldist inni.
  • Kortasýn sýnir aðeins færslur með hnit. Stækkaðu kortið og staðfestu að hnit séu skráð ef ekkert birtist.
Algengar villur
  • Engar niðurstöður: of þröng skilyrði eða ósamrýmanlegar síur. Hreinsaðu síur og prófaðu víðari leit.
  • „Leitin virkar ekki í þessum reit“: reiturinn er ekki í atriðaskrá. Veldu annan reit eða notaðu Atriðaskrá (⚙).
  • Röng eining: staðfestu að þú sért í réttri einingu, t.d. Aðföng, Nafnaskrá eða Sýningar.
  • Ósamræmi í efnisorðum: frjáls texti er ekki það sama og stýrt efnisorð. Veldu hugtak úr Efnisorðaskrá.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina