Algengar spurningar: Sýningar, lán og skrásett

Breytt Tue, 28 Apr kl 12:55 PM

Hvernig stofna ég nýjan samning?

Farðu í SamningarNý færsla → fylltu út grunnupplýsingar → Vista.

Hvernig bæti ég aðfangi í samning eða sýningu?

Opnaðu samning eða sýningu → smelltu á myndatákn / hægri hliðarspjald → finndu aðföng með vistaðri leit, safnnúmeri, vinnumöppu eða leitarskilyrðum → dragðu aðföngin inn.

Mikilvægt: Fyrir hvert tengt aðfang verður sjálfkrafa til Skrásett-færsla þar sem þú skráir stöðu, tryggingar, meðhöndlun og framsetningu í samhengi verkefnisins.

Hvernig sé ég hvort aðfang sé í láni?

Í samningi: hægri-smelltu á litlu töfluna sem inniheldur aðföngin → veldu töflu (t.d. „Tafla með mynd“) → skoðaðu reitinn Staða aðfangs.

Þetta virkar aðeins ef Staða hefur verið sett inn í Skrásett fyrir viðkomandi aðfang.

Hvað þýðir „Skrásett“?

„Skrásett“ er módul sem inniheldur öll aðföng sem hafa verið tengd við samning/sýningu.

Hvernig skrái ég aðfang sem skilað?

Til að uppfæra stöðu láns fyrir tiltekið aðfang þarftu að fara í Skrásett. Þar eru geymdar upplýsingar um aðfang fyrir tiltekinn samning eða sýningu (t.d. staða, meðhöndlun, tryggingar og ástand).

Fljótlegast er að opna Skrásett-færsluna beint úr töflunni í samningnum:

Smella á aðfang

Breyta stöðu

Athugið: Aðfang er áfram tengt samningi þó það sé merkt „Skilað“. Þú ert að uppfæra stöðu í Skrásett, ekki að fjarlægja aðfangið úr samningnum.

Af hverju sé ég ekki neina samninga eða sýningar?

Þú ert líklega ekki með aðgangsheimild að viðkomandi einingu. Hafðu samband við RS. Athuga: vegna samninga getur þurft beiðni frá yfirmanni til að sjá útlán.

Af hverju sé ég sama aðfang oftar en einu sinni?

Sama aðfang getur verið í fleiri en einni sýningu eða fleiri en einu láni. Það verður til sér Skrásett-færsla fyrir hvert samhengi.

Hvernig sé ég öll aðföng í sama láni eða sömu sýningu?

Notaðu Flýtivísun efst hægra megin í færslunni í Skrásett einingunni (Skrásett/Samningur/Sýning – fer eftir uppsetningu).

  • Flýtivísun - Stjórnborð  – gott til að sjá stöðu og fylgja eftir.
  • Flýtivísun - Töflusýn – gott til að sía, bera saman reiti og flytja út.

Hvernig fjarlægi ég rangt aðfang úr samningi eða af sýningu?

  1. Opnaðu samning/sýningu (eða viðkomandi Skrásett-færslu).
  2. Finndu aðfangið/tenginguna.
  3. Smelltu á X til að fjarlægja tenginguna við samningin eða sýninguna.
  4. Vistaðu.

Athugið: Þú ert að fjarlægja tenginguna – ekki að eyða aðfanginu úr Skrásett einingunni. Til þess verður þú að smella á mínusinn og eyða henni.

Af hverju birtist sýning ekki í dagatali?

  • Tímabil (frá–til) vantar eða er rangt.
  • Sýningarstaður er ekki rétt skráður (á að vera tengt við Stofnanir).
  • Ef þið notið stöðu-reit: sýningin er ekki í réttri stöðu (t.d. „Opin“).

Get ekki tengt einstakling við sýningu. Ég veit að hann er til í nafnaskránni.

Reitir í Sýningum tengjast Samstarfsaðilum, ekki Nafnaskrá. Þú gætir þurft að stofna aðilann í Samstarfsaðilum ef hann á að tengjast sýningu. Nafnaskrá er fyrst og fremst fyrir sögulegt samhengi aðfanga.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina