Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Myndlist/Hönnun. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám. Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“.
- Hraðskráningarsnið er hér valið ef við á (Ef hraðskráningarsnið er valið, má lesa nánar um það í Minnisblað fyrir stofnun Hraðskráningarsniðs). Skráð er í opna tölureitinn „Fjöldi“ ef verið er að skrá ákveðinn fjölda aðfanga í einu. Síðan er smellt á „Samþykkja“.
Í kjölfarið birtist aðfangasniðið
Skrá Listaverk:
1) Tengja myndir/skjöl/teikningar
Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp mynd/skjali/teikningu. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf.
Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikningu“.
Síðan er smellt á „Choose file“ og myndin valin, smellt á „Open“ og síðan „Samþykkja.“ Ef vill er hægt að fylla út viðeigandi upplýsingar um rafræna mynd/skjal/teikningu. Sjá mynd:
Grunnupplýsingar
Hér er fyllt út eins ítarlega og hægt er upplýsingar um verkið sem verið er að skrá. Mælt er með að renna ítarlega yfir alla skráningarmöguleikana og fylla út eftir bestu getu.
Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá, Safnnúmer, Efni, Listamaður/höfundur/hönnuður ásamt Verkheiti (Ef verk er ekki með verkheiti skal skrifa „Nafnlaus“ í sviga í reitinn verkheiti).
Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla VII. Myndlist/Hönnun í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum landskerfi.is. Sjá mynd:
Aðrar upplýsingar
Hér er mikilvægt að skrá í frjálsu textareitina allar nánari upplýsingar um verkið sem vitað er um. Gott er að hafa það í huga að reitirnir „Lýsing“, „Sýningartexti“ og „Heimildir“ eru reitir sem birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta verkið þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unnin og lýsandi fyrir verkið. Síðan er smellt á „Vista“.
Fjármál:
Reiturinn Fjármál er einungis til fyrir skráningu listmuna. Hér á að skrá viðeigandi upplýsingar um hvernig fjármálasögu verksins er háttað ef hún er þekkt. Þetta snið þarf að fylla út til að virkja eigendasöguna.
Mælt er með að renna ítarlega yfir alla skráningarmöguleikana og fylla út eftir bestu getu. Síðan er smellt á „Vista“. Sjá mynd:
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina