Stofna rannsókn:
Þegar skráning er hafin er smellt á „Stofna rannsókn“, þar sem skráningarsnið fyrir fornleifarannsókn birtist. Hér eru fylltar út allar viðeigandi upplýsingar og síðan smellt á „Skrá“ Sjá mynd:
Skrá jarðfund og sýni:
Jarðfundir tengjast fornleifaraðsókninni og því þarf að byrja á því að velja Rannsóknarstaður og síðan hvort verið er að skrá jarðfund eða sýni. Þar opnast yfirlitsgluggi yfir skráða jarðfundi. Hér er hægt að skrá staka jarðfundi eða þá nota hraðskráningarsnið til að skrá fleiri í einu (sjá leiðbeiningar um notkun hraðskráningarsniða:
Skráning jarðfunda:
- Smelltu á „Skrá jarðfund“
- Hraðskráningarsnið er hér valið ef við á (Ef hraðskráningarsnið er valið, er hægt lesa nánar um það í Minnisblað fyrir stofnun Hraðskráningarsniðs). Skráð er í opna tölureitinn „Fjöldi“ ef verið er að skrá á ákveðinn fjölda aðfanga í einu.
- Síðan er smellt á „Samþykkja“
- Hér birtist aðfangasnið jarðfunda. Fylltu út viðeigandi upplýsingar og smelltu á „Vista“. Lágmarkskröfur skráningar jarðfundar eru: Undirskrá, Safnnúmer, Tegund, Fjöldi (Reiturinn „Staður“ er sjálfgefin og fylgir rannsóknarstaðnum)
- Í lokin er smellt á „Vista"
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina