Munaskrá

Breytt Fri, 30 Jun 2023 kl 08:15 AM



Þessar leiðbeiningar eiga við skráningu aðfanga í Munasnið og fjalla um helstu aðgerðir tengdar skráningu muna þar á meðal vallista yfir þær aðfangategundir sem hægt er að skrá í munaskrá.  

  • Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Munir. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám. Þá er smellt á „SKRÁ“ og valin aðfangategundin sem á við. (Hér eftir verður miðað við skráningu á mun, en ef valin er bók sem dæmi er vísað í Minnisblaðið fyrir skráningu í Bókaskrá.)

 


Skrá Mun:

Þegar búið er að velja aðfangategund fyrir munaskráningu (sjá mynd fyrir ofan) er hraðskráningarsnið valið ef við á (Ef hraðskráningarsnið er valið, má lesa nánar um það í Minnisblað fyrir stofnun Hraðskráningarsniðs). Skráð er í opna tölureitinn „Fjöldi“ ef verið er að skrá ákveðinn fjölda aðfanga í einu. Síðan er smellt á „Samþykkja“.  

Í kjölfarið birtist aðfangasniðið


Næstu skref:

Tengja myndir/skjöl/teikningar
Mælt er með að byrja skráningu á því að tengja og hlaða upp myndir/skjöl/teikningar. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf. 

  • Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikning“ 

 

Skráning mynda: 

1.    Velja síðan „Choose file“ 
2. Velja síðan myndina smella á „Open“ 
3. Að lokum er smellt á „Samþykkja.“ Ef vill er hægt að fylla út viðeigandi upplýsingar um rafrænu myndina/skjalið/teikninguna.
 

 

Grunnupplýsingar

  • Hér er fyllt út eins ítarlega og hægt er með upplýsingum um aðfangið sem verið er að skrá. Mælt er með að renna yfir alla skráningarmöguleikana 
  • Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá, Safnnúmer, Heiti og Fjöldi 
  • Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla VI. Munir í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum landskerfi.is. Sjá mynd: 

 

1)  Aðrar upplýsingar

  • Hér er mikilvægt að skrá í frjálsa textareitnum allar nánari upplýsingar um aðfangið sem vitað er um. 

 

  • Gott er að hafa það í huga að reitirnir „Lýsing“, „Sýningartexti“ og „Heimildir“ eru reitir sem birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta aðfangið þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unnin og lýsandi fyrir aðfangið. Síðan er smellt á „Vista“  


Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina