Myntir og seðlar

Breytt Fri, 30 Jún, 2023 kl 11:32 AM


Skrá Mynt/Seðill:

  1. Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Myntir/Seðlar. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám.
  2. Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“
  3. Síðan er hraðskráningarsnið hér valið ef við á (Ef hraðskráningarsnið er valið, er lesa nánar um það í Minnisblað fyrir stofnun Hraðskráningarsniðs). Skráð er í opna tölureitinn „Fjöldi“ ef verið er að skrá ákveðinn fjölda aðfanga í einu. Síðan er smellt á „Samþykkja“.  Sjá mynd:

 

Í kjölfarið birtist aðfangasniðið

 

Næstu skref:

Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp mynd/skjali/teikningu. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf.

  • Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikning“  Sjá mynd

 

Skráning mynda:

  1. Velja „Choose file“
  2. Velja síðan myndina smella á „Open“
  3. Að lokum velja „Samþykkja.“ Ef vill er hægtað fylla út viðeigandi upplýsingar um rafræna mynd/skjal/teikningu.

 

 

Grunnupplýsingar

Hér eru upplýsingar um aðfangið settar inn eins ítarlega og hægt er. Mælt er með að renna vel yfir alla skráningarmöguleikana í aðfangasniðinu.


Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá og Safnnúmer


Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla IX: Mynt í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum á landskerfi.is.


Síðan er smellt á „Vista“. Sjá mynd:

 


Aðrar upplýsingar

Hér er mikilvægt að skrá í frjálsa textareitinn allar nánari upplýsingar um aðfangið sem vitað er um.

Gott er að hafa það í huga að reitirnir „Lýsing“ „Sýningartexti“ og „Heimildir“ eru reitir sem birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta aðfangið þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unnin og lýsandi fyrir myntina/seðlana.
Síðan er smellt á „Vista“  sjá mynd:

 

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina