Litla merkið gefur þér möguleika að velja reiti úr öðrum einingum. Einnig gott að nota ef þú finnur ekki rétta reitinn.


Hvernig finn ég öll listaverk eftir konur?
Í Aðföngum velurðu Nánari leit. Smelltu á litla leitartréð (Thesaurus) og farðu: Nafnaskrá → Nafnaskrá reitir → Kyn.

Hvernig leita ég innan ákveðins safns?
Veldu Safn í leitarglugganum áður en þú keyrir leitina.
Hvernig finn ég ljósmyndir þar sem ákveðinn einstaklingur er á mynd?
Nánari leit → Reitur: Tileinkun (Nafnaskrá) eða Á mynd → veldu viðkomandi úr listanum.

Hvernig leita ég eftir hlutverki (t.d. ljósmyndari)?
Smelltu á efnisorðatákn, veldu Nafnaskrá og síðan Hlutverk og veldu rétt hlutverk.

Hvernig leita ég í texta (t.d. heimildir eða lýsingu)?
Veldu reitinn Texti (Aðrar upplýsingar) eða Heimildir → skilyrði: Inniheldur.
Hvað þýðir „Er tómt“?
Finnur færslur þar sem ekkert er skráð í viðkomandi reit.
Af hverju fæ ég 0 niðurstöður?
Algengast:
- Of mörg leitarskilyrði
- Rangt safn valið
- Rangt skilyrði (t.d. „Jafnt og“ í stað „Inniheldur“)
- Leitað í röngum reit
Byrjaðu einfalt. Bættu við einu skilyrði í einu.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina