Ég sé ekki ákveðna einingu (t.d. Samninga, Sýningar eða Flutninga)
Þú ert líklega ekki með réttar aðgangsheimildir.
- Staðfestu að þú sért skráð(ur) inn á réttan aðgang / stofnun.
- Ef eining vantar enn: hafðu samband við RS og biddu um aðgang að viðkomandi einingu.
„Vista“ eða „Eyða“ er óvirkt
Þá vantar oft ritheimild eða færsla er læst.
- Ef þú átt að geta breytt: hafðu samband við RS.
Ég get ekki hlaðið upp mynd/skjali
Prófaðu þetta fyrst:
- Notaðu algeng snið: JPG, PNG eða PDF.
- Minnkaðu skráarstærð (t.d. þjappa mynd eða vista sem „minni“ PDF).
- Prófaðu annan vafra (t.d. Chrome/Edge) ef þetta virkar ekki.
Upphleðsla stoppar eða hrynur
Algengast er að skrá sé of stór eða nettenging rofni.
- Minnkaðu skrána og prófaðu aftur.
- Ef þú ert með margar skrár: hlaðið upp einni í einu.
Skýrsla/útflutningur opnast ekki
Prófaðu þetta:
- Leyfðu pop-ups fyrir vefinn.
- Þrengdu úrtakið (færri niðurstöður) og prófaðu aftur.
- Opnaðu Word eða Excel áður en þú sækir skýrsluna.
- Ef gögn koma frá öðrum söfnum gæti þetta verið aðgangsmál → hafðu samband við RS.
Er einhver hjálp inni í kerfinu?
Ef hjálpartexti er til staðar við reit: smelltu á gírtáknið við reitinn og veldu „? Hjálp“.
Skipta um tungumál eða lykilorð
Farðu í Notendastillingar.
- Tungumál tekur oft gildi eftir útskráningu og innskráningu.
- Lykilorð: fylgdu leiðbeiningum í notendastillingum eða innskráningarsíðu.
Ef eitthvað „vantar“ (eining, hnappur, reitur) er það oftast aðgangsheimild.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina