Áður en þú byrjar
- Hafðu við höndina notandanafn og lykilorð eða rafræn skilríki.
- Notaðu Chrome eða Firefox.
- Bókamerktu slóðina að Sarpi svo þú finnir hana fljótt næst.
Innskráningarferli
Fylgdu þessum skrefum til að skrá þig inn í Sarp:
- Opnaðu vafra og farðu á slóðina fyrir Sarp.
- Veldu Íslensku áður en þú heldur áfram.
- Veldu innskráningaraðferð:
- Ísland.is (rafræn skilríki) – smelltu á bláa hnappinn neðar á síðunni.
- Notandanafn og lykilorð.
- Valkvætt: Hakaðu við "Muna eftir mér" aðeins á einkatæki.
- MJÖG mikilvægt að skipta um lykilorð eftir að þið skráið ykkur inn í fyrsta skipti með því lykilorði sem ykkur var úthlutað.
Öryggisábending: Ekki virkja "Muna eftir mér" á sameiginlegum eða opinberum tækjum.
Algeng verkefni
Skipta um tungumál
Á innskráningarsíðu eða síðar undir Notendur → Notendastillingar.
Gleymt lykilorð
Smelltu á "Gleymt lykilorð?" og fylgdu leiðbeiningum í tölvupóstinum sem þú færð.
Breyta lykilorði
Farðu í Notendur → Notendastillingar og veldu Breyta lykilorði.
Ísland.is
Innskráning með rafrænum skilríkjum er í boði fyrir notendur með íslenska kennitölu.
Aðgangsheimildir
Í Sarpi eru fjórar aðgangsheimildir sem stjórna því hvað notendur mega gera:
| Heimild | Hvað má gera? |
|---|---|
| Lesa | Skoða, en ekki breyta, vista eða eyða. |
| Notandi 1 | Takmarkaðar aðgerðir (skilgreint af viðkomandi safni). |
| Notandi 2 | Takmarkaðar aðgerðir (skilgreint af viðkomandi safni). |
| Stjórnandi | Fullar heimildir að viðeigandi einingum og stillingum. |
Athugasemd: Heimildir eru ákveðnar af safni og geta verið mismunandi.
Algengar villur og lausnir
Ef þú átt í vandræðum:
- Get ekki skráð mig inn: Athugaðu að þú sért að nota réttan vafra (Chrome eða Firefox) og að notandanafn/lykilorð sé rétt ritað.
- Ísland.is virkar ekki: Gakktu úr skugga um að rafræn skilríki þín séu virk á island.is.
- Síðan er á ensku: Veldu tungumál efst á síðunni eða í Notendastillingum eftir innskráningu.
Ábending: Ef þú ert enn í vandræðum með innskráningu, hafðu samband á sarpurhjalp@landskerfi.is
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina