Algengar spurningar: Aðföng og myndir

Breytt Tue, 28 Apr kl 12:49 PM

Hér eru algengar spurningar sem tengjast aðföngum, myndum og birtingu þeirra.

Ábending: Myndir og tengingar þeirra stjórna oft því hvað birtist á ytri vef.

Af hverju raðast safnnúmer vitlaust?

Ef þú vilt raða safnnúmerum í réttri töluröð þarftu að velja rétta röðun: Röðun = Safnnúmer A vægi eða Safnnúmer B vægi.

Hvernig geri ég mynd að aðalmynd (sjálfgefinni)?

Hægrismelltu á mynd og veldu Setja sem sjálfgefna mynd eða opnaðu viðkomandi aðfang. Farðu í hægri stiku og smelltu á filmutáknið. Dragðu myndina sem á að vera aðalmynd yfir á myndina sem er sjálfgefin. Mundu að vista.

Hvernig sé ég allar myndir sem tengjast aðfangi?

Opnaðu Rafræn skjöl eða myndasvæði aðfangsins til að sjá allar tengdar skrár.

Hvernig finn ég aðföng sem hafa engar myndir?

Notaðu Nánari leit og veldu:

  • Reitur: Rafræn skjöl
  • Skilyrði: Er tómt

Hvernig finn ég aðföng á ákveðnum varðveislustað?

Notaðu Nánari leit og veldu reitinn Varðveiðslustaður/ný staðsetning.

Hvernig sé ég hvort aðfang sé í láni?

Þú getur séð í flipanum tilvísanir hvort að fang er tengt samningi eða á sýningu.

Af hverju sé ég bara eina mynd þó fleiri séu til?

  1. Hægra megin við færsluna eru tákn fyrir rafrænskjöl.
  2. Smelltu á táknið sem lítur út eins og filma.
  3. Þar birtast öll skjöl og myndir sem tengjast færslunni.


Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina