Algengar spurningar: Nafnaskrá

Breytt Thu, 5 Mar kl 3:39 PM

Hvernig leita ég að einstaklingi í Nafnaskrá með þjóðskrá/kennitölu?

Þegar þú slærð inn t.d. nafn eða kennitölu í reitinn Þjóðskrá birtist fellilisti með mögulegum niðurstöðum. Veldu rétta línu úr listanum.

Ábending: Ef margir heita það sama, takmarkaðu leit með kennitölu eða staðsetningu (heimilisfang) ef hún birtist í listanum.

Finna einstaklinga fædda fyrir 1900

Nánari leit → reitur: Fæðingardagur → skilyrði: Minna en → sláðu inn 1900.

Finn ekki einstakling í leit

Athugaðu stafsetningu. Prófaðu líka Nánari leit og notaðu t.d. fæðingarár til að þrengja.

Tengja einstakling við aðfang

Auðveldast er að vinna út frá aðfanginu. Einnig má gera í Nafnaskrá: smelltu á + við aðfangatöflu → finndu aðfang (safnnúmer/ID) → veldu tileinkun og hlutverk ef við á → Vista.

Leita eftir stöðu (t.d. ljósmyndari)

Í Nánari leit: notaðu reitinn Staða og veldu hlutverk.

Ef þú þarft að velja úr lista: smelltu í reitinn Staða → notaðu gírtáknið → „Leita eftir gildi“ (ný leit eða bæta við síu).

Sjá hvað aðili er tengdur við

Opnaðu aðilann í Nafnaskrá → skoðaðu Aðföng og flipann Tilvísanir.

Ef þú sérð ekki frá hvaða safni aðföngin eru: hægri-smelltu á litlu aðfangatöfluna og veldu Tafla með mynd (eða aðra töflu sem sýnir safn/dálka sem vantar).

Breyta upplýsingum um aðila

Já — ef þú hefur ritheimild. Opnaðu færsluna → breyttu → Vista.

Töflusýn: sé ekki allt / vantar safn

Ef þú sérð ekki allt í töflusýn: prófaðu að hægri-smella og velja töflu sem heitir Einstaklingar. Athugaðu líka dálkaval efst til hægri.


Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina