Haus, fótur og stikur til hægri og vinstri veita aðgang að helstu aðgerðum og upplýsingum óháð einingu.
Haus
Upplýsingar um virka færslu sjást með bláu letri: auðkenni (ID), notandanafn þess sem skráði og "síðast breytt". Með því að smella á tengilinn sést breytingarsagan.

Fótur
Neðri hluti skjásins er með aðgerðarhnöppum og sýnum. Athugið að mismunandi hnappar eru milli eininga.
- Búa til, afrita, eyða
- Vista, afturkalla, endurgera, hafna, hlaða niður
- Nánari sýn, töflusýn, myndasýn, kortasýn
- Fletta milli færslna (úr leitarniðurstöðu), skilaboð, skrá út

Vinstri stika
Vinstri hliðarstikan tilheyrir leitinni. Þar er hægt að leita eftir mismunandi leiðum.

- Leit er textaleit, hægt að nota AND, OR og NOT.
- Vistuð leit sýnir allar leitir sem þú hefur réttindi til að nota.
- Röðun – hægt er að raða leitarniðurstöðum eftir ákveðnum gildum. Ath. ef raða á eftir safnnúmeri þá verður að nota "Safnnúmer A vægi" eða "Safnnúmer B vægi".
- Nánari leit og Saga eru með bláu letri sem þýðir að hægt er að smella á heitin. Saga sýnir síðustu leitarniðurstöður.
Hægri stika
Í hægri stikunni er hægt að skoða og vinna með atriði sem tengjast færslunni sjálfri.

Leit í aðföngum: Hér er hægt að finna aðföng og tengja við færsluna.
Rafræn skjöl: Hér getur þú séð öll rafræn skjöl sem tengjast aðfanginu. Einnig er hægt að smella á plúsinn og bæta við nýjum skjölum. Það er líka hægt að gera með því að draga og sleppa gögnum í gluggann.
Ábending: Með því að hægri smella á mynd í þessum glugga getur þú valið "Bæta við tilvísun: Sjálfgefin mynd". Þá ertu að velja viðkomandi mynd sem aðalmynd.
Tilvísanir: Hér getur þú séð allar tilvísanir sem tengjast færslunni.
Framsetning gagna
Lista- og leitarniðurstöður má skoða sem Töflusýn, Myndasýn eða Kortasýn (og eftir atvikum: dagatal / stjórnborð).
Töflusýn
- Dálkar: Bæta við / fjarlægja í valmynd; draga til að raða upp.
- Röðun: Smella á dálkheiti (hækkandi / lækkandi).
- Dálkabreidd: Draga til ef stuðningur er fyrir hendi.
- Vista snið: Vista uppsetningu (dálkar + röðun) til endurnotkunar.

Myndasýn
- Stærð mynda: Veldu stærð í fellivalmynd við myndasýn.
- Birting: Niðurstöður birtast sem þumljos; raðaðu eftir heiti, dagsetningu o.fl.
- Sjálfgefin mynd: Merktu rétta mynd í hægra spjaldi Skrár og tengingar.

Kortasýn
- Forsenda: Færslur verða að hafa gild hnit til að birtast.
- Aðdráttur / færsla: Músarhjól / trackpad, tvísmella eða + / –; dragðu kortið til að færa.
- Hópun punkta: Stækkaðu til að sjá stök atriði.
- Upplýsingagluggi: Smelltu á punkt → færslan velst í listanum vinstra megin; opnaðu nánar ef þarf.

Gagnlegar ábendingar
- Gírtákn í reitum opnar valmynd (t.d. "Leita eftir gildi", "Atriðaskrá").
- Plús við reiti/hópa bætir nýrri línu (t.d. fleiri efnisord eða staði).
- Dragðu og slepptu skrám í hægra spjaldið til að hlaða upp myndum/skjölum.
- Stilla zoom í vafra á ~90–100% ef tákn eða hnappar vantar á skjáinn.
- Vistaðu leitarskilyrði og töflusýn (dálkar + röðun) fyrir endurnotkun.
- Sjálfgefin mynd gerir myndasýn og leitarniðurstöður skýrari.
- Vantar hnit? Skráðu í reitinn "Hnit"; ISNET93 / ISNET2016 virka til kortabirtingar.
- Opna í nýjum glugga (Ctrl / ⌘ + smella) til að halda listum/leitarniðurstöðum opnum samhliða færslu.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina