Skrá Hús:
- Þegar skráning er hafin er smellt á Aðföng -> Hús. Þá birtist yfirlitsgluggi með tilheyrandi undirskrám.
- Þá er smellt á „STOFNA FÆRSLU“ Sjá mynd:
Í kjölfarið birtist aðfangasniðið
Næstu skref:
Mælt er með að byrja skráningu með að tengja og hlaða upp í „myndir/skjöl/teikningar“. Hægt er að tengja eins margar myndir og þarf.
Til að tengja mynd/skjal/teikningu við skráninguna er smellt á „Hlaða upp mynd/skjali/teikningu“ Sjá mynd:
Skráning mynda:
- Síðan „Choose file“
- Velja síðan myndina smella á „Open“
- Að lokum er smellt á „Samþykkja.“ Ef vill er hægt að fylla út viðeigandi upplýsingar um rafrænu myndina/skjalið/teikninguna. Sjá mynd:
Grunnupplýsingar
Hér eru upplýsingar um húsið settar inn eins ítarlega og hægt er. Mælt er með að renna vel yfir alla skráningarmöguleikana í aðfangasniðinu.
Lágmarksskráningar til að geta vistað aðfangasnið eru: Undirskrá og Hús.
Til að nálgast ítarlegri upplýsingar um ákveðin skráningaratriði og nákvæmari lýsingar á skráningarreitunum er mælt með að skoða kafla IV. Hús í Skráningarhandbók Sarps 2.0 sem hægt er að nálgast á þjónustuvefnum á landskerfi.is.
Síðan er smellt á „Vista“. Sjá mynd:
Aðrar upplýsingar
Hér er mikilvægt að skrá í frjálsa textareitinn allar nánari upplýsingar um húsið sem vitað er um.
Gott er að hafa það í huga að nokkrir af reitunum birtast á ytri vef sarpur.is ef valið er að birta húsið þar. Það þarf því að gæta þess með almenning í huga að textinn í þessum reitum sé vel unninn og lýsandi fyrir húsið.
Síðan er smellt á „Vista“
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina