Leita í fornleifarannsóknum og skráningum

Breytt Wed, 6 Maí kl 12:10 PM

Í einingunni Rannsóknir og greiningar er hægt að finna upplýsingar um fornleifarannsóknir og fornleifaskráningar. Leit í þessari einingu byggir á sömu meginreglum og leit í öðrum einingum Sarps. Smelltu á fyrirsögn hér að neðan til að opna eða loka sýnidæmum.

Mundu

  • Byrjaðu á víðri leit og þrengdu síðan með Nánari leit.
  • Notaðu Atriðaskrá þegar þú vilt velja úr gildum sem eru til í kerfinu.
  • Notaðu Leita eftir gildi þegar þú vilt vera viss um að leitað sé í réttum reit.
  • Þú getur oft notað Ctrl-smellt / ⌘-smellt til að opna tengda færslu í nýjum glugga.
 Mikilvægt um uppbyggingu og tengingar 

Í einingunni Rannsóknir og greiningar eru tengingar við aðföng sýndar í flipanum Aðföng. Þar er hægt að skoða hvaða gripir, sýni eða fornleifar tengjast viðkomandi rannsókn eða skráningu.

  • Fornleifarannsóknir: Í flipanum Aðföng sérðu töflu yfir jarðfundna gripi og sýni sem tengjast viðkomandi rannsókn. Þú getur smellt á færslu í töflunni til að skoða hana. Með því að halda niðri Ctrl og smella á færsluna opnast hún í nýjum glugga.
  • Fornleifaskráning: Í flipanum Aðföng sérðu töflu með fornleifum sem tengjast viðkomandi skráningu. Sama gildir um smell og Ctrl-smell / ⌘-smell og í rannsóknaeiningunni.

Með því að hægri-smella á gardínuna í horninu hægra megin geturðu skoðað atriðin í töflunni í myndaboxi. Ef þú hefur heimild geturðu skilgreint þína eigin töflu eftir því hvaða reiti þú vilt sjá.

Tafla og myndabox í Rannsóknum og greiningum

 Hvernig finn ég ákveðna fornleifarannsókn eða skráningu? 

Smelltu á gírtáknið sem birtist þegar farið er með músina fyrir aftan heitið Rannsóknarheiti og veldu Atriðaskrá.

Þá færðu lista yfir allar rannsóknir sem eru skráðar í Sarp og þú hefur aðgang að. Með því að velja eina rannsókn á listanum og smella á Leit færðu allar niðurstöður með því nafni sem þú valdir.

Atriðaskrá fyrir rannsóknarheiti

Þú getur líka farið í Nánari leit og byggt leitina upp þar.

Nánari leit eftir rannsóknarheiti

Ef þú ert ekki viss hvað rannsóknin heitir en veist staðinn, geturðu valið leitarskilyrði eftir stað.

Leit eftir stað

 Hvernig finn ég allar rannsóknir frá ákveðnum stjórnanda? 

Einfaldasta leiðin er að fara í reitinn Þátttakendur, smella á gírtáknið fyrir framan þátttakandann og velja Leita eftir gildi – ný leit. Ef þú ert nú þegar búin/n að byggja upp leit geturðu valið að bæta við skilyrðinu.

Leita eftir gildi í þátttakendum

Þegar þú ferð í Nánari leit sérðu skilyrðið sem hefur bæst við leitina.

Nánari leit eftir þátttakanda

Þú getur síðan breytt nafninu á viðkomandi og sett inn annað nafn ef þú vilt leita að rannsóknum frá öðrum stjórnanda eða þátttakanda.

 Hvernig leita ég að ákveðnu rannsóknarefni? 

Notaðu reitinn fyrir rannsóknarefni í Nánari leit til að finna rannsóknir sem tengjast ákveðnu efni eða viðfangsefni.

Leit eftir rannsóknarefni

Hægt er að setja inn mörg rannsóknarefni og nota AND / OR skipanir til að þrengja eða víkka leitina.

Mörg rannsóknarefni með AND og OR

 Hvernig vel ég bara fornleifaskráningar? 

Einfaldasta leiðin er að velja gírtáknið fyrir aftan orðið Tegund og velja Atriðaskrá. Þar geturðu valið þá tegund sem á við, til dæmis fornleifaskráning.

Velja tegund úr Atriðaskrá

 Hvernig finn ég rannsóknir sem voru framkvæmdar á ákveðnum árum? 

Einfaldast er að leita eftir ártali eða tímabili í viðeigandi reit í Nánari leit.

Leit eftir árum

Reitur 1 er fyrsti reiturinn í safnnúmerum og er jafnframt notaður sem árið sem rannsókn fór fram.

Algengar villur

  • Engar niðurstöður: athugaðu hvort gömul leitarskilyrði séu enn virk og hreinsaðu leitina áður en þú byrjar aftur.
  • Rangt heiti eða stafsetning: notaðu Atriðaskrá til að velja gildi sem eru til í kerfinu.
  • Of margar niðurstöður: bættu við fleiri skilyrðum í Nánari leit, t.d. stað, árabili, tegund eða þátttakanda.
  • Færsla opnast í sama glugga: notaðu Ctrl-smell / ⌘-smell ef þú vilt halda leitarniðurstöðum opnum og skoða færsluna í nýjum glugga.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina