Í boði verða sömu námskeið og áður, auk örnámskeiðs um leit í Sarpi sem getur hentað vel til upprifjunar. Sum námskeið eru kennd hjá Landskerfi bókasafna en önnur fara fram í fjarkennslu í gegnum Teams. Örnámskeiðin eru öll í Teams.
Við tökum fagnandi á móti hugmyndum að nýjum námskeiðum eða ábendingum um efni sem þið viljið sjá í kennslu. Slíkar ábendingar má senda inn á sarpurhjalp@landskerfi.is
Einnig bjóðum við upp á styttri Teams-fundi um afmörkuð viðfangsefni. Fundirnir eru hugsaðir sem einstsaklingsfundir, en hægt er að óska eftir að fleiri taki þátt ef við á. Hér er hægt að skrá sig á fjarfund.
Athugið: Í skráningarforminu í Bookings þarf að velja bæði dagsetningu og tíma, jafnvel þótt aðeins einn dagur og ein tímasetning séu í boði. Annars geta komið villuboð og skráningin misfarist. Gangið úr skugga um að staðfestingarpóstur berist eftir skráningu.
Námskeið haustið 2026
Gott að hafa í huga
- Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
- Áskilinn er réttur til að fella niður eða sameina námskeið ef ekki næst næg þátttaka.
- Námskeiðin eru gjaldfrjáls fyrir aðildarsöfn Sarps.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina