Námskeiðið veitir yfirlit yfir hvernig einingarnar Sýningar, Samningar og Skrásett vinna saman í Sarpi.
Á námskeiðinu er sýnt hvernig hægt er að halda utan um verkefni frá upphafi til enda, til dæmis þegar gripir eru valdir á sýningu, samningar eru skráðir eða fylgst er með stöðu aðfanga í tengslum við útlán, innlán eða sýningar.
Sérstök áhersla er lögð á Skrásett, sem tengir aðföng við sýningar og samninga. Skrásett heldur utan um upplýsingar um aðfang í samhengi tiltekinnar sýningar, samnings eða láns og má hugsa sem eins konar verkefnaskrá gripsins.
Námskeið: Framhaldsnámskeið í Sarpi – Sýningar, Samningar og Skrásett
Lengd: 2 klukkustundir
Næstu námskeið
Efni námskeiðsins
Á námskeiðinu er farið yfir helstu tengingar milli sýninga, samninga, skrásetningar og aðfanga.
1. Vinnuflæði verkefna
- Hvernig tengjast Aðföng, Sýningar, Samningar og Skrásett?
- Hvenær eru einingarnar notaðar?
- Munurinn á upplýsingum um aðfangið sjálft og upplýsingum um aðfang í tilteknu verkefni.
2. Sýningar
Farið er yfir stofnun sýninga, tengingu aðfanga við sýningu og helstu skráningarreiti sem tengjast sýningarvinnu.
3. Skrásett
Farið er yfir hlutverk Skrásett í umsýslu sýninga, innlána, útlána og stöðu aðfanga í verkefnum.
4. Samningar
Farið er yfir hvernig samningar eru stofnaðir, hvernig þeir tengjast aðföngum og hvernig þeir nýtast í innlánum og útlánum.
5. Samantekt og spurningar
Samantekt á helstu atriðum og tími fyrir spurningar og umræður.
Kennsluefni
Sýningar - skráning og tenging við aðföng
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina