Grunnnámskeiðið veitir almenna kynningu á Sarpi og helstu virkni kerfisins. Farið er yfir hvernig notendur skrá sig inn, rata um kerfið, leita að upplýsingum, vinna með aðföng og tengja þau við helstu grunnskrár.
Áhersla er lögð á þau atriði sem notendur þurfa til að geta skráð aðföng, leitað, notað töflusýn og flutt út gögn. Aðrar einingar kerfisins, svo sem Sýningar, Samningar, Skrásett, Búnaður og Flutningar, eru kynntar stuttlega en ítarlegri kennsla í þeim fer fram á framhaldsnámskeiðum.
Fjarnámskeið: 2 klukkustundir
Staðnámskeið: 2 klukkustundir auk 1 klukkustundar þar sem notendur geta prófað sig áfram og fengið aðstoð
Næstu námskeið
Staðnámskeið
Akureyri
Dagsetning í vinnslu
Kemur síðarEfni námskeiðsins
1. Innskráning og að rata um Sarp
Farið er yfir innskráningu með rafrænum skilríkjum, heimildir og hjálparleiðir. Notendur fá yfirsýn yfir helstu hluta viðmótsins, valmyndir, stikur, hnappa og tengingar milli eininga.
2. Aðföng – grunnskráning
Farið er yfir helstu reiti í aðfangaskráningu, lágmarksskráningu og samræmda skráningu. Einnig er farið yfir hvað birtist á ytri vef Sarps.
3. Nafnaskrá, Staðaskrá og Heimildaskrá
Farið er yfir tilgang og notkun, hvernig leitað er að færslum og hvernig aðili, staður eða heimild er tengd við aðfang. Einnig er fjallað stuttlega um tengingar við Þjóðskrá, Landskrá fasteigna og Gegni.
4. Leit, töflusýn og útflutningur
Farið er yfir grunnleit, nánari leit, leit eftir gildum og notkun sía. Einnig er fjallað um vistaða leit, töflusýn, röðun, sérsniðnar töflur, útflutning í Excel og fyrirframgerðar skýrslur og úttektir.
5. Hvernig einingar Sarps tengjast saman
Stutt kynning á Sýningum, Samningum, Skrásett, Búnaði, Flutningum og Rannsóknum. Markmiðið er að þátttakendur sjái hvernig aðföng tengjast öðrum verkferlum í kerfinu.
6. Spurningar
Í lok námskeiðsins geta notendur spurt spurninga og fengið nánari útskýringar á því sem farið var yfir.
Við mælum með þessum grunnmyndböndum
Gott er að skoða þessi myndbönd fyrir eða eftir námskeiðið til upprifjunar:
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina