Algengar spurningar: Aðföng

Breytt Thu, 5 Mar kl 3:36 PM

Safnnúmer raðast vitlaust

Ef safnnúmer raðast ekki í réttri töluröð þarftu að velja rétta röðun.

  1. Í leitarniðurstöðum opnaðu Röðun, t.d. hægra megin eða í töflusýn.
  2. Veldu Safnnúmer A vægi eða Safnnúmer B vægi.

Gera mynd að aðalmynd

Til að velja hvaða mynd birtist sem aðalmynd:

  1. Opnaðu aðfangið.
  2. Í hægri hliðarstiku opnaðu myndir (filmutákn).
  3. Dragðu rétta mynd í aðalmyndarsætið.
  4. Smelltu á Vista.

Finna aðföng án mynda

Þú getur fundið aðföng án mynda með Nánari leit.

  1. Opnaðu Nánari leit.
  2. Veldu reitinn Rafræn skjöl.
  3. Settu skilyrði: Er tómt.
  4. Smelltu á OK.

Sjá hvort aðfang er í láni

Í aðfangafærslu má sjá hvort það tengist láni eða sýningu.

  • Skoðaðu Tilvísanir.
  • Þar sjást tengingar við samninga eða sýningar.
  • Í Skrásett sést staða lánsins.

Sjá allar myndir

Smelltu á filmutáknið í hægri hliðarstiku. Þar sjást allar myndir og skjöl sem tengjast færslunni.

Finna aðföng á ákveðnum stað

Þú getur fundið aðföng á ákveðnum stað með Nánari leit.

  1. Opnaðu Nánari leit.
  2. Veldu staðsetningarreit (t.d. núverandi staðsetning).
  3. Veldu rétt skilyrði og staðsetningu.

Það vantar reiti í töfluna

Stundum er hægt að hægrismella í töflusýn og velja annarsskonar töflur.


Ef leit gefur 0 niðurstöður: prófaðu færri skilyrði fyrst og bættu þeim svo við aftur.

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina