Flipi: Ástand og meðhöndlun

Breytt Mon, 2 Feb kl 3:14 PM

Í flipanum ástand eru reitir sem tengjast almennt ástandi aðfangsins. Margir reitir sem áður voru eingöngu vistaðir undir Forvarsla eru nú aðgengilegir hér.

Þessi grein fjallar um tvo flipa: Ástand og Meðhöndlun

Flipi: Ástand

Flipi Ástand

Ástand

Birtist á ytri vef: Nei

Í listanum Ástand eru ýmis efnisorð sem voru flutt úr eldra kerfi. Líkt og ástand fyrir meðferð og ástand eftir meðferð.

Hægt er að velja tegund úr listanum eða smella á táknið hægra megin við og sjá lista. Þegar nýtt ástand er skráð inn þá helst eldra inni og ný dagsetning kemur. Þannig er hægt að halda utan um ástandssögu aðfangsins.

Ástandssaga

Eldri ástandsfærslur eru geymdar í kerfinu þannig að þú getur séð sögu ástands aðfangsins yfir tíma.

Hætta

Birtist á ytri vef: Nei

Ef hætta er t.d. af meðhöndlun á grip þá ber að skrá það inn í þennan reit. Ef hakað er við "Virk" þá birtist hættumerkið á grunnspjaldinu. Hægt er að bæta við listann undir "Hætta". Hafið samband við starfsfólk RS.

⚠️ Hættumerkið

Þegar "Virk" er hakað birtist hættumerki á grunnspjaldinu til að vara við sérstakri meðhöndlun.

Hætta reitur

Hættumerki á grunnspjaldi

Forvarsla

Birtist á ytri vef: Nei

Hér undir sést hvaða forvarsluskýrslur hafa verið unnar á viðkomandi aðfangi. Athugið ekki hafa allir heimild til að skoða eininguna Forvarsla.

Upplýsingar hægra megin voru áður skráðar í forvarsluviðmótinu. Þessar upplýsingar eru nú aðgengilegar á aðfanginu sjálfum.

Athugið: Aðgangur að Forvarsla er háður notendaheimildum.

Forvarsla upplýsingar

Flipi: Meðhöndlun

Meðhöndlun

Birtist á ytri vef: Nei

Þessir reitir tengjast hvernig meðhöndla á aðfangið. Ef gripur er settur á sýningu er hægt að afrita þessar upplýsingar yfir í Skrásett eininguna. Sjá nánar undir skrásett leiðbeiningar.

Meðhöndlun reitir

Helstu meðhöndlunarreitir

  • Við sýningu: Afspilunarbúnaður, Hjóðgjafi, Læstur skápur/púlt, Skjár
  • Rammi: Innrammað, Tilbúinn rammi, Án ramma, Timabundinn rammi, Rammi frá safni, o.fl.
  • Meðhöndlun: Upprétt/flutt standandi, Kassa með hita- og rakastýringu, Tývek, o.fl.
  • Öryggi: Ábreiða, Stallur/undirstaða, Þjófavörn, Öryggsborði/band, o.fl.

Afrita á sýningu

Þegar gripur er settur á sýningu er hægt að afrita meðhöndlunarupplýsingarnar beint frá aðfanginu til að tryggja samræmi. Sjá nánar hér

Ábendingar í stuttu máli
  • Ástandssaga: Eldri færslur geymast sjálfkrafa
  • Hættumerki: Haka við "Virk" til að birta viðvörun
  • Forvarsla: Aðeins fyrir notendur með heimild
  • Meðhöndlun: Hægt að afrita á aðfang fyrir sýningar
  • Ytri vefur: Enginn af þessum reitum birtist á ytri vef

Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina