Undir flipanum Varðveislustaðir skráir þú hvar aðfang er staðsett, fylgist með flutningum og heldur utan um varanlegan varðveislustað.
Mikilvægt
- Veldu Ný staðsetning til að skrá núverandi varðveislustaður.
- Þegar ný staðsetning er vistuð, verður eldri staðsetning sjálfkrafa "Söguleg".
- Mælt er með að fylla líka út Varanlegur varðveislustaður (jafnvel þótt hann sé sá sami).
Ný staðsetning (varðveislustaður)
Varðveislustaður er valinn í reitnum Ný staðsetning. Þú getur byrjað að skrifa nafnið til að fá upp tillögur, eða smellt á efnisorðatákn til að fletta staðnum upp. Þegar nýr varðveislustaður er valinn og vistaður, færist eldri staðsetning í stöðuna "Sögulegur".


Strikanúmer
Reiturinn sýnir sjálfvirkt úthlutuð strikamerki. Til að breyta strikamerki, fylltu í reitinn "Breyta strikamerki" og vistaðu. Ef þú hreinsar reitinn, birtist aftur sjálfvirka númerið.
Um sjálfvirk strikanúmer
- Sarpur býr sjálfkrafa til strikanúmer fyrir öll aðföng
- Númerið samanstendur af forskeyti (t.d. "Obj-") og einstöku auðkenni
- Þú getur yfirskrifað sjálfvirka númerið með þínu eigin strikamerki
- Mikilvægt: Eigið strikamerki má ekki byrja á "Obj-" eða "Acc-"
- Ef þú eyðir eigin strikamerki, kemur sjálfvirka númerið aftur
Skanna
Skannaðu strikamerki eða sláðu inn númerið handvirkt og ýttu á enter. Skönnuð strikamerki er notað bæði í MuseumPlus (vefviðmóti) og í MuseumPlus Scan (smáforriti) til að vinna á vettvangi. ATH MuseumPlus Scan fylgir ekki með og þarf að greiða fyrir það sérstaklega.
Mikilvægt
- Í MuseumPlus Scan er hægt að skanna á 3 vegu: myndavél, ytri skanni eða handvirkur innsláttur.
- Forritið getur unnið bæði online og offline — ef unnið er offline geta aðgerðir birst sem ósamstilltar þar til tækið nær neti aftur.
Ef þú ert að staðfesta staðsetningu með skanna, er gott að byrja á að skanna varðveislustað (staðsetningu) og síðan aðföngin sem eiga að vera á staðnum.
Athugaðu um pakkaða hluti
Ef aðfangi er pakkað í umbúðir (Pakkað í), er almennt ekki hægt að færa aðfang sem staka einingu. Þá er betra að færa umbúðirnar (kassan) eða fjarlægja aðfangið fyrst úr umbúðunum. (Nánar um þetta í greinum um Búnað og Flutninga.)
Pakkað í
Ef aðfang er nú þegar í pakkningu/boxi, sýnir reiturinn í hvaða pakkningu/boxi það er í.
Búnaður
Skráðu tengda hluti eða búnað sem tengist aðfanginu (t.d. flutningskassa, ramma, stand eða tæknibúnað). Þetta er ekki núverandi pökkun, heldur tengsl við búnað/umbúðir.
Skráning búnaðar/umbúða og pökkunarsamhengi er útskýrt nánar í greininni "Skrá búnað eða umbúðir".
Flutningar
Hér sjást allar flutningsfærslur sem aðfangið hefur verið hluti af. Ný staðsetningarfærsla birtist í Varðveislustaði fyrir alla hluti og pakkningar.

Nánar um að skanna í flutningum (t.d. færa kassa) er útskýrt í greininni "Skrá flutning aðfanga".
Varanlegur varðveislustaður
Hér skráir þú varanlegan varðveislustaður aðfangsins. Gott er að fylla þennan reit út alltaf, jafnvel þótt hann sé sá sami og núverandi staðsetning. Þegar verk er t.d. lánað eða flutt, á varanlegi varðveislustaðurinn að vera óbreyttur.
Hvernig er best að leita að aðföngum á ákveðnum varðveislustaði?
Hér er stutt myndband sem sýnir hvernig þú leitar að aðföngum eftir varðveislustaði.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina