Undir flipanum Textar eru reitir fyrir viðbótartexta og aðrar upplýsingar. Reitirnir geta verið mismunandi eftir aðfangategund, en flestir eru svipaðir milli tegunda.
Mundu
- Notaðu Texta-flipann þegar upplýsingar passa ekki í grunnreitina.
- Sumir textareitir birtast á ytri vef — það er tekið fram strax undir heiti reits hér að neðan.
Athugasemdir
Birtist á ytri vef: Nei
Reiturinn Athugasemdir inniheldur oft efni sem var flutt úr eldra kerfi (Sarpi 3) og er ekki í daglegri notkun, eða á eftir að færa í annan stað. Þú getur líka skráð hér innanhús athugasemdir sem hjálpa við vinnslu og skráningu.
Hlekkir
Birtist á ytri vef: Nei
Hér er gott að skrá slóðir (t.d. á vefsíðu, grein eða umfjöllun) ef fjallað hefur verið um viðkomandi aðfang á netinu.
Áletrun / Áritun
Birtist á ytri vef: Já
Hér getur þú skráð áletrun og áritun sem kann að vera á ljósmyndum, verkum eða teikningum (t.d. texta, undirskrift, merkingar eða áletranir á bakhlið).
Skýringartexti
Birtist á ytri vef: Nei
Reitur sem er fyrst og fremst hugsaður sem innanhússskýringar sem geta gagnast í skráningu og umsýslu.
Tegund er notuð til að skilgreina hvers konar skýringartexta er verið að skrá. Hægt er að bæta við tegundum eftir þörfum.
Helstu tegundir
- Aðfang – almennur skýringartexti um aðfangið sjálft.
- Flutningur – texti sem tengist flutningi, pökkun eða afhendingu aðfangs.
- Kista – upplýsingar um kistu, kassa eða aðrar umbúðir.
- Rammi – skýringar um ramma, umgjörð eða festingar.
- Sýning – texti sem tengist sýningu, uppsetningu eða notkun aðfangs á sýningu.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina